05/06/2026
🍃Þeyttur basil smurostur🍃
Einföld og góð uppskrift eftir 💚
150 gr rjómaostur
1 box fersk VAXA basil
1 hvítlauksrif, pressað
1–2 msk ólífuolía
Ferskur börkur af lífrænni sítrónu
Smá sítrónusafi
1 msk alasíhunang
Salt og pipar eftir smekk
Settu allt í matvinnsluvél eða notaðu töfrasprota.
🌱Þeyttu þar til blandan verður létt og loftmikil.
🌱Smakkaðu til með salti, pipar og sítrónusafa.
🌱Kældu í 15–20 mín áður en borið er fram.
Virkilega góður með kexi eða grænmeti, á súrdeigsbrauð, á grillaðar sætar kartöflur eða sem meðlæti með grillmat 🍃
Hægt að poppa smurostinn upp með því að bæta við rifnum parmesan, setja ristaðar furuhnetur yfir eða smá chili fyrir meiri hita 🍃
Vörur VAXA fást í .is, og 💚