10/05/2022
Hæ
Við erum mæðgin staðsett í Laugardalnum. Ég Heiti Katrín Eva og sonur minn er Hlynur Egill. Ég starfa sem kennari í Laugarnesskóla og Hlynur er nemandi í Laugarlækjaskóla, 7. bekk.
Bæði erum við miklir dýravinir og elskum öll dýr. Á heimilinu okkar er köttur, naggrísir og fiskar (einn eldri bróðir og pabbinn búa þar líka). Höfum einnig átt hamstra, salamöndru og froska.
Hlynur fékk þá hugmynd að bjóða fólki upp á dýrapössun í júlí í sumar. Með því langar hann að vinna sér inn fyrir gjaldeyri fyrir ferð í ágúst.
Ábyrgðin á dýrunum yrði samt sem áður í mínum höndum en ég yrði alltaf með honum í öllu sem viðkemur dýrunum.
Við getum boðið upp á að koma heim og gefa að borða, veita félagsskap, þrífa kattarsand á meðan eigendur eru í burtu svo dæmi sé tekið.
Einnig getum við tekið að okkur að viðra hunda og passa þá ef eigendur fara í frí.
Sama gildir um smádýr.
Endilega hafðu samband í skilaboðum ef þetta er eitthvað sem hentar þér.
Við getum útvegað fínustu meðmæli ef óskað er eftir því.