TeamWork Hundaskóli

TeamWork Hundaskóli Team Work einblínir á samvinnu milli hunds og eiganda. Fjölbreytt námskeið þar sem einungis er notast við jákvæðar þjálfunaraðferðir.

Team Work er hundaskóli í eigu Elísu H Hafþórsdóttur. Elísa er faglærður hundaþjálfari og hundaatferlisfræðingur frá Vores Hundecenter og býður hennar menntun upp á :

Þjálfun gegnum mótun (shaping)

Klikkerþjálfun

Tegundaþekking

Að sækja

Sporlagning

Ljósþjálfun (fyrir heyrnarlausa hunda)

Tungumál hundsins: Róandi og ógnandi merki

Atferli hunda og úlfa

Líkamstjáning hundsins

Streituvaldar

og virkni streitu

Kennsluaðferðir/ sálfræði gagnvart eigendum

Skyndihjálp, líkamleg og andleg

Námskeiðaskipulag

Vandamálahundur á æfingasvæðinu

Nudd til heimabrúks

Aðskilnaðarkvíði

Afnæming

Árátturöskun (OCD)

Árásarhneigð

samtals og viðtalstækni

Kvíði, ótti, undirgefni og óöryggi

Grunnatriði í kennslu lærðar hegðunar hunda

Sjúkdómar, almenn lyf, geðlyf og náttúrulyf

Hvolpafullar tíkur og fæðing

Atferlispróf fyrir got

Atferlispróf fyrir hvolpa eldri en 8 vikna

Skapgerð og atferlispróf

Áfallahjálp í tengslum við aflífun

Fyrirbyggjandi þjálfun til að draga úr t.d vöðvaskaða

Virkjun í daglega lífinu

Kæru vinir !Gló, 2 ára Border Collie skvísa er að leita sér að fjölskyldu sem hún getur búið hjá þegar eigandi hennar er...
02/03/2023

Kæru vinir !

Gló, 2 ára Border Collie skvísa er að leita sér að fjölskyldu sem hún getur búið hjá þegar eigandi hennar er fjarverandi.

Gott er að viðkomandi hafi reynslu af fjárhundum og helst Border Collie.❤️❤️

Viljið þið deila þessu áfram svo Gló komist í sem allra bestu hendur ❤️

31/12/2021

Síra mín er frekar hljóðhrædd að eðlisfari og var farin að gelta í hvert sinn sem hún heyrði sprengjur, sem hún hefur ekki gert hin 8 áramótin. Hún var farin að bregðast við ef skellt var bílhurð úti, Svo ég greip strax inn í til að stoppa hegðunina frá því að versna.

Rót vandans er ekki geltið, heldur hræðslan á bak við geltið.

Til að laga geltið, þarf að breyta tilfinningunum sem Síra fær þegar hún heyrir hvellina og það er best og skilvirkast að gera í gegn um mótskilyrðingu. Streituhormónunum adrenalin m.a er skipt út fyrir m.a endorfin, sem er vellíðunar hormon sem við framleiðum m.a þegar við borðum.

Hægt er að sjá hvernig likamstjáning Síru breytist úr hræðslu yfir í jákvæða spennu, rólegt dillandi skott og eftirvæntingu eftir fleiri verðlaunum sem fylgja hvellunum.

Með mjög hrædda hunda mæli ég með að fá fagaðila með í lið við ykkur því það þarf að byrja þessa þjálfun rétt svo að hún hafi ekki öfug áhrif. Gleðilegt ár ❤

15/11/2021

Selma litla Russian Toy skvísa þróaði með sér hræðslu við beislið sitt upp að því marki að hún var farin að verja sig. Við bjuggum til leik gegn um shaping þar sem Selma lærði að snerta beislið til að fá verðlaun.

Hér er myndband sem Sigga eigandi hennar sendi mér af þeim að æfa .

Að breyta tilfinningunni sem Selma hefur gagnvart beislinu er grundvöllur fyrir því að hún geti sjálf sett hausinn inn í beislið þegar hún á að fara í það, án þess að líða eins og hún þurfi að verja sig.

Þetta er árangurinn innan við viku. Verður gaman að sjá þær í framhaldinu þegar næstu skref verða tekin 👏

Kíara mín var svo fallegur hundur 😍 og blíðust allra❤
01/09/2021

Kíara mín var svo fallegur hundur 😍 og blíðust allra❤

Mig langar að minna ykkur á, kæru hundaeigendur, að vera ekki með lausa hunda þar sem er varp🐣. Þessi tími er svo viðkvæ...
03/06/2021

Mig langar að minna ykkur á, kæru hundaeigendur, að vera ekki með lausa hunda þar sem er varp🐣.

Þessi tími er svo viðkvæmur fyrir fuglana, ungarnir litlir og varnarlausir og margir fuglar enn a hreiðri. Heimsókn frá hundi á hreiðurstað getur ollið því að fuglinn yfirgefur hreiðrið💔

Mynd fyrir athygli. (Ef þessi vekur ekki athygli þá veit ég ekki hvað 🤣)

26/05/2021

Kosmó 10 ára lærir á hlaupabretti í gegn um mótun/shaping 🐕🏋️‍♂️

Þessi 13 mánaða Border Collie skvísa er að leita að fullkomnu framtíðarheimili.Hún þarf eiganda sem hefur kunnáttu á teg...
24/05/2021

Þessi 13 mánaða Border Collie skvísa er að leita að fullkomnu framtíðarheimili.

Hún þarf eiganda sem hefur kunnáttu á tegundinni, nógan tíma fyrir hana og er tilbúin/nn að vinna með henni í grunnhlýðni. Hún er yndisleg í alla staði, mjög barngóð, svoldið bílveik og alveg rosalega orkumikil 🐕❤ hún myndi ekki henta á heimili þar sem eru kettir.

Frekari upplýsingar gef ég hér í gegn um skilaboð. Hún fer ekki hvert sem er.

11/12/2020

Ég er alltaf að tala um hvernig maður getur þjálfað hundinn með því að móta hegðunina, frekar en að vera alltaf að segja hundinum hvað hann á að gera.

Hér er dæmi um hegðun sem ég mótaði.
Fyrir honum þá þýðir það "að maturinn sé á disknum" að hann sé ekki að fara borða hann - og það er það sem hann velur að gera, ekki vegna þess að ég sagði honum að hann ætti ekki að gera það, heldur vegna þess að það er sú ákvörðun sem ég lét hann taka á sínum tíma. Eins og sést í myndbandinu þá set ég diskinn niður og segi ekki orð.

Á disknum er kjúklingur, rækjur, nautakjöt, egggjanúðlur og allskonar sem hann hefði alls ekkert á móti að fá, en fær ekki nema bara píínu smakk fyrir að velja rétt😁

Ritgerð sem ég gerði 2017 um árásarhneigð í hundum. Vegna skort á tæknilegri kunnáttu þá set ég þetta inn í formi mynda🐶
17/11/2020

Ritgerð sem ég gerði 2017 um árásarhneigð í hundum. Vegna skort á tæknilegri kunnáttu þá set ég þetta inn í formi mynda🐶

Kæru hundaeigendur.Ég er byrjuð að taka niður tíma aftur og hef haft samband við þá sem voru að bíða. Ef ég hef ekki haf...
17/11/2020

Kæru hundaeigendur.

Ég er byrjuð að taka niður tíma aftur og hef haft samband við þá sem voru að bíða. Ef ég hef ekki haft samband við einhvern þá endilega senda mér línu svo við getum neglt niður tíma 🐶

09/11/2020

Kosmó var fjallahundur í dag. Hann þurfti smá sannfæringu um að koma til baka en merkti eina þúfu og ákvað svo að það væri best að vera duglegur strákur 🐶❤

Address

Reykjavík
210

Telephone

+3548456777

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when TeamWork Hundaskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to TeamWork Hundaskóli:

Share

Category