22/07/2026
Það er margt um að vera hjá okkur á þessu ári og allt að ganga eftir óskum og höfum við beðið frekar lengi eftir Greyhound hvolpum 🥺 en þetta er þó síðasta got hjá okkur á þessu ári og verður mikið fjör hér heima 🐾 svo tekur bara við slökun og hvolpa uppeldi.
Greyhound got 🎀JÚLÍ/ ÁGÚST 2026 🎀
Báðir foreldrar eru með frábæra skapgerð, hafa staðið sig vel á sýningum og eru full heilsuhraust. Hafa verið sérstaklega skoðuð fyrir ræktun á bæðu augum, hjarta og eru dna prufuð 💕
það eru ekki fleiri Greyhound plön í vændum á næstunni þannig ekki hika við að hafa samband ef áhugi er fyrir hendi 🐾