Hundalífstíll

  • Home
  • Hundalífstíll
Call Directions Website Contact the business

Hundalífstíll Sérhæfð í stressuðum hundum.
Taumgöngunámskeið
Aðskilnaðarkvíðapakkar Unnið úr tilfinningavanda með áherslu á merkjamál og aukin samskipti.

Virðingarríkt hundauppeldi.
**** Frí umræða á Instagram ****

15/09/2026

Hvaða Enrichment hefur hvutti fengið í dag?
👌 Frosti skellti sér í NoseWork eftir 2 ára hlé vegna veikinda ❤️ G*t strax á degi 2 æft án nammis við felu 🤯😍💪 Hversu duglegur 😊👌

10/09/2026

Starir hann á útidyrahurðina þegar þú ert ekki heima?
Sefur ekki eða jafnvel geltir og er órólegur?
Eltir hann þig jafnvel mikið heima við og er æstur þegar þú kemur heim?

Hvort sem þú ert að fara að kenna hundinum þínum fyrstu skrefin í að læra að vera einn heima eða ert með hund sem líður ekki nægilega vel einum heima. Þá ertu velkomin í sérhæfða þjálfun hjá mér✅

Þú færð aðstoð að komast í fullan bata með aðskilnaðaratferlisráðgjafa sem hefur sérhæft sig að aðstoða hunda við að líða betur einum heima ❤️

Velkomin í fjarþjálfun í aðskilnað hvenær sem er.
Frekari upplýsingar https://www.hundalifstill.is/adskilnadartjalfun

[email protected]

1 Laust pláss á námskeiðið sem hefst 27.ágúst í Gbr/Hfj🐕 Dreymir þig um rólegri og ánægjulegri göngur með hundinum þínum...
22/08/2026

1 Laust pláss á námskeiðið sem hefst 27.ágúst í Gbr/Hfj

🐕 Dreymir þig um rólegri og ánægjulegri göngur með hundinum þínum? 🌿

Verður hundurinn þinn spenntur, stressaður eða bregst sterkt við þegar hann sér aðra hunda, fólk eða önnur áreiti?

Á þessu námskeiði lærum við að vinna með tilfinningar hundsins, byggja upp öryggi og skapa betri samskipti milli hunds og leiðbeinanda með vellíðan að leiðarljósi ❤️

Innifalið:
📚 Fjöldi fræðslufyrirlestra
👥 Frír æfingarhópur eftir útskrift
🌱 Aðferðir byggðar á virðingarríku hundauppeldi
🐾 Verkfæri sem þú getur notað strax í daglegu lífi

Á námskeiðinu lærir þú meðal annars að:
🍀 Æfa undir streituþröskuldi hundsins
🧠 Skilja betur tilfinningar og hegðun hundsins
🤝 Styðja hundinn þegar aðstæður verða erfiðar
🎯 Vinna með taumhald, merkjamál hunda, tímasetningar og samskipti á markvissan hátt
🌻Læra hvenær og hvernig þú tekur inn í aðstæður

Námskeiðið hentar fyrir:
✔ Hunda sem bregðast við áreiti með æsingi, óöryggi eða kvíða
✔ Eigendur sem vilja skapa meiri vellíðan, ró og öryggi í göngum
✔ Þau sem eru tilbúin að leggja vinnu í varanlegar breytingar
✔ Fólk sem vill prófa nýjar og árangursríkar leiðir í þjálfun

🌟 Markmiðið er betri líðan og hæfni í samskiptum til að geta ráðið betur við aðstæður

👉 Nánari upplýsingar og skráning:
www.hundalifstill.is/taumgongunamskeid

📅 Viðburðinn má einnig finna hér:
https://fb.me/e/jwQY18nLz

Kominn tími fyrir meiri vellíðan ykkar beggja við göngu? Að eiga auðveldara með að sjá hunda og önnur áreiti? 🤸‍♂️Næsta ...
19/08/2026

Kominn tími fyrir meiri vellíðan ykkar beggja við göngu?
Að eiga auðveldara með að sjá hunda og önnur áreiti? 🤸‍♂️
Næsta hefst 27.ágúst

Sérhannað fyrir hunda sem bregðast við þegar þeir sjá áreiti (t.d. aðra hunda). Æsast eða verða óöryggir/stressaðir.
Mikið magn fyrirlestra fylgja og frír æfingarhópur að lokinni útskrift.

🍀 Æfum undir streituþröskuld
👩 Lærir aðferðir til að aðstoða hundinn með tilfinningar sínar
Fyrir þá sem:
✌ Hunda sem bregðast við að sjá áreiti með æsing/kvíða (reactivity)
💪 Fólk sem er tilbúið í vinnuna og að taka skref í átt að bata
👥 Þau sem vilja vera hluti af æfingarhóp eftir útskrift
🌳 Vilja æfa með Virðingarríku hundauppeldi
🐕 Vilt prófa aðferðir sem eru ólíkar því sem þú hefur gert áður
🤯 Tilbúin að vinna með taumhald, tækni, merkjamál og samskipti á öðru leveli. Með vellíðan beggja að leiðarljósi.

Sjá frekari upplýsingar og næstu námskeið á:
www.hundalifstill.is/taumgongunamskeid
Einnig má sjá viðburðinn á Facebook

Gleðilegt Pride 😍🥳❤️❤️🥳❤️🥳❤️🥳
08/08/2026

Gleðilegt Pride 😍🥳❤️
❤️🥳❤️🥳❤️🥳

Ný grein 😍 Aðskilnaðarþjálfun hunda - Fyrir hvaða hunda er það?
17/06/2026

Ný grein 😍 Aðskilnaðarþjálfun hunda - Fyrir hvaða hunda er það?

Á hundurinn þinn erfitt með að vera einn heima? Geltir hann, vælir, eyðileggur hluti eða sýnir merki um streitu þegar þú ferð út? Þá gæti verið um að ræða aðskilnaðarkvíða eða aðskilnaðartengdan vanda. Sem betur fer er hægt að hjálpa flestum hundum með markvissri aðsk...

Sama hver ástæðan er fyrir því að fólk vill ekki sjá lausan hund sem gæti mögulega komið að þeim - því jú, slysin gerast...
10/06/2026

Sama hver ástæðan er fyrir því að fólk vill ekki sjá lausan hund sem gæti mögulega komið að þeim - því jú, slysin gerast, sérstaklega ef hundurinn þinn er laus 🫢

Sama hversu hlýðinn þér finnst þinn eða meinlaus.

Það að fá lausan hund eða sjá lausan hund og þurfa að breyta þar af leiðandi sinni leið og þurfa mögulega að takast á við veikt taugakerfi eftir slíkan hitting eða næstum því hitting. Er ekki boðlegt!

Öllum ætti að líða vel og örugg að ganga um stíga borgarinnar þar sem taumskylda er viðhöfð!

Taugakerfið og veikindi fólks ætti ekki að ýfast upp í hvert skipti sem þau fara út um hússins dyr, því þau eru næstum því eða lenda jafnvel í því, að ''voða hlýðni'' lausi hundurinn hljóp að hundinum manns 🥶 Og eyðileggur mögulega þá þjálfun, taugakerfi hundsins, mannsins, eða ýfir jafnvel upp líkamleg veikindi hjá hundi eða manni.

Það eru milljón ástæður fyrir því að fólk vill ekki sjá lausan hund og verður óöruggt. Stundum er það vegna eigin hunds, stundum er það vegna annarra atriða. Ástæðan skiptir ekki máli.

Fólk á heldur ekki að þurfa að öskra ,,settu hundinn þinn í taum''. Ekkert frekar en það á ekki og er vonandi sjaldan tilefni til að minna fólk á að fara ekki yfir á rauðu ljósi.

Takk fyrir að hafa hundinn þinn í taum til að öllum líði öruggum í kringum þig hvort sem þú tekur eftir því eða ekki að fólk sé óöruggt þegar það sér lausa hundinn þinn ❤️

Address


Opening Hours

Monday 09:00 - 21:00
Tuesday 09:00 - 21:00
Wednesday 09:00 - 21:00
Thursday 09:00 - 21:00
Friday 09:00 - 21:00
Saturday 01:00 - 15:00
Sunday 01:00 - 15:00

Telephone

+3548477765

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hundalífstíll posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hundalífstíll:

Shortcuts

  • Want your business to be the top-listed pet store/pet service?

Share