Sunnuhvoll - Breeding - Horses for sale

Sunnuhvoll - Breeding - Horses for sale Training - Salehorses - Riding instruction Við tókum því og fluttum í Ölfusið í 25 fm. bústað sem við fengum að láni og settum á skikan okkar. sæti og í 3.

Á Sunnuhvoli búum við Sigurður Sigurðsson og ég Anna Björg Níelsdóttir ásamt þremur börnum okkar þeim Arnari Bjarka, Glódís Rún og Védísi Huld. Við Siggi stunduðum bæði hestamennsku sem börn og unglingar, hann á Laugarvatni og ég í Kópavogi og á Kjartansstöðum í Flóa þar sem ég var í sveit hjá frænku minni. Við tókum okkur bæði frí frá hestamennsku þegar við fórum í framhaldsskóla. Ég átti þó unga

hryssu sem ég hafði fengið í fermingargjöf frá frænda mínum Óla Pétri. Þessi hryssa er Saga frá Litlu Sandvík og var hún sýnd í kynbótadómi árið 1991, þar sem hún hlaut 7.98 í einkunn, þetta sama ár er henni haldið og fyrsta afkvæmið fæðist 1992 Bjarki frá Sunnuhvoli. Á þessum tíma búum við í Kópavogi en hugurinn leitaði í sveitina.

Árið 1996 eru okkur boðnir 10 hektarar til kaups út úr jörðinni Hvoli, ásamt útihúsum. Nýbýli var stofnað með nafninu Sunnuhvoll. Næsta ár notuðum við í að byggja okkur íbúðarhús sem við fluttum inní haustið 1997. Þá var komið að því að innrétta hesthús í útihúsi sem áður hafði verið fjárhús og minkahús, þar settum við 8 einshestastíur og 6 tveggjahestastíur.

Árið 2004 er jörðin Kvíarhóll boðin út af ríkinu, og vorum við svo heppin að eiga hæsta boð, þar sem okkur vantaði meira land en Kvíarhóll liggur að Sunnuhvoli. Við fluttum starfsemi okkar úr hesthúsinu sem stóð á Hvoli í hesthúsið á Kvíarhóli.

Ári seinna hefur samband við okkur ungur piltur sem vildi fá leigt hesthúspláss þá um sumarið. Það varð úr að við leigðum honum. Þetta var hann Viðar Ingólfsson og hófst þannig samstarf okkar og Viðars. Viðar og Jóna hafa reynst okkur einstaklega vel. Og höfum rekið sameiginlegt hesthús að Kvíarhóli síðan. Ræktunin okkar byggist á hryssunni Sögu frá Litlu – Sandvík. Saga er undan Sörladótturinni Drottingu frá Kjartansstaðakoti og Náttfarasyninum Stíg frá Kjartansstöðum. Saga hefur gefið okkur mörg afkvæmi og nú eru tvær dætur hennar komnar í ræktun hjá okkur, þær Urður og Hreyfing frá Sunnuhvoli. Ræktunin er smá í sniðum en við leggjum frekar áherslu á gæðin en magnið. Ræktunarmarkmið okkar er að rækta falleg hross, viljug með fótaburði, fasi og rými, hvort sem það eru alhliðahross eða klárhross. Arnar Bjarki

Arnar Bjarki byrjaði í hestamennsku mjög ungur og áhuginn kviknaði strax. Það má segja að hann sé nánast búinn að vera í hesthúsinu síðan. Fyrsti hesturinn hans Arnars Bjarka var Jari frá Kjartansstöðum og það er hesturinn sem hefur svo gengið á milli þeirra systkina og þau hafa öll byrjað sína hestamennsku honum. Arnar fór á sitt fyrsta mót á Jara árið 2000, þá 8 ára gamall, og hefur hann verið á keppnisbrautinni á hverju ári síðan. Arnar fór á sitt fyrsta Landsmót á Jara árið 2002, þá voru þeir félagar báðir 10 ára gamlir. Lyfting frá Litlu-Sandvík var annar hesturinn hans Arnars og kepptu þau á nokkrum töltmótum í Ölfusinu. Hún fór síðan í ræktun. Þá kom Blesi frá Laugarvatni til sögunnar. Þeim félögum gekk mjög vel á keppnisbrautinni en þeir urðu Suðurlandsmeistarar í fjórgangi barna þrisvar sinnum (árin 2005, 2006 og 2007). Arnar fékk svo merina Kviku frá Krossi þegar hann var 13 ára og keppti á henni í fimmgangi með góðum árangri. Þau urðu Reyjavíkurmeistarar í fimmgangi unglinga árið 2006. Blesi og Kvika kenndu Arnari mjög margt og áttu stóran þátt í að móta hann sem reiðmann á hans yngri árum. Haustið 2007 keypti Arnar sinn fyrsta hest sjálfur, Parkerssoninn Radíus frá Sólheimum. Þetta var fyrsti hesturinn sem Arnar var með alveg frá upphafi tamningar og hélt áfram með í tvö ár en þá var hann seldur til Noregs. Kvika var seld þetta sama haust og í hennar stað var keyptur geldingurinn Gammur frá Skíðbakka III. Arnar keppti á Gammi í fimmgangi, gæðingaskeiði og slaktauma tölti. Árið 2008 komust þeir í b-úrslit á Landsmóti í A-flokki gæðinga. Arnar og Gammur voru í úrslitum á langflestum mótum sem þeir tóku þátt í en sigrarnir voru þó ekki margir. Árið 2008 fór Arnar út til Noregs og keppti á sínu fyrsta móti utan landssteinana, Norðurlandamótinu í Seljord. Þar keppti hann á hestinum Snar frá Kjartansstöðum, æfingarnar þar úti gengu ekki vel í fyrstu og átti Arnar í erfiðleikum með að ná tengslum við hestinn. Nokkrum dögum fyrir mótið small þetta allt hjá þeim félögum enda með gott lið á bak við sig. Arnar kom heim sem Norðurlandameistari í fimmgangi og samanlögðum fimmgangsgreinum.

2008 um haustið var farið í leiðangur norður í land til að leita að efnilegum hestum. Á Húsavík fannst einn gæðingurinn, stóðhesturinn Kamban frá Húsavík. Kamban varð keppnishesturinn hans Arnars strax um vorið. Þeir enduðu í 3. sæti í tölt á Íslandsmóti yngriflokka árið 2009 og árið eftir voru þeir félagar í b-úrslitum á sama móti. Árið 2011 keppti Arnar á Kamban á Reykjavíkurmeistaramóti og endaði þar í 2. sæti á Íslandsmeistaramóti yngri flokka en á báðum þessum mótum kepptu þeir í tölti. Á þessum þrem sumrum kepptu þeir einnig á mörgum smærri mótum með góðum árangri. Sumarið 2011 varð Kamban svo keppnishesturinn hennar Glódísar sem þá var aðeins 9 ára gömul. Vonandi frá Bakkakoti, fyrstu verðlauna stóðhestur, var keytur haustið 2009 og Arnar hefur keppt mikið á honum í fimmgangi með flottum árangri. Þeir urðu meðal annars Suðurlandsmeistarar árið 2011. Röskur, Rökkvasonur úr eigin ræktun, varð svo næsti keppnishestur hjá Arnari. Röskur var blíður og góður hestur, yndislegur í umgengi. Í fyrstu var Röskur flókinn fyrir Arnar í reið, hesturinn kunni mun meira en knapinn og mikill viljinn þvældist oft fyrir. Arnar var þó ekki lengi að læra á Rösk því gangtegundirnar voru frábærar. Sigrarnir voru ekki margir en parið var farsælt og fóru þeir félagar oft yfir sjö bæði í tölti og fjórgangi. Arnar fór á sitt fyrsta Heimsmeistaramót á Rösk árið 2011 og stóðu þeir sig með prýði. Segja má að Röskur sé sá hestur sem hefur mótað Arnar hvað mest og gert hann að þeim reiðmanni sem hann er í dag. Arnar frá Blesastöðum 2A er keyptur fyrir Arnar Bjarka haustið 2011. Segja má að Arnar Bjarki hafi náð mestum árangri á sínum ferli með Arnar enn sem komið er allavega. Þeir urðu Íslandsmeistarar í fimmgangi 2012, en það er fyrsti íslandsmeistaratitillinn hans Arnars Bjarka, og Suðurlandsmeistarar í fimmgangi sama sumar en þeir kepptu einnig á Reykjavíkurmeistaramóti og voru lang efstir eftir forkeppni. Nafnarnir tóku þátt í úrtöku fyrir Heimsmeistaramótið í Berlín 2013 og unnu sér sæti í landsliðinu. Þeir fóru út til Berlínar fyrir Íslandshönd og ætluðu sér mikils, lang efstir eftir forkeppni í fimmgangi en úrslitin voru því miður ekki nógu sannfærandi. En samt sem áður 3. sæti í fimmgangi og 2. sæti í samanlögðum fimmgangsgreinum, flottur árangur. Arnar Bjarki er mjög duglegur og samviskusamur, hann stundar hestamennskuna af miklu kappi og leggur sig allan fram til að verða betri knapi. Arnar hefur mikla keppnisreynslu og einnig hefur hann tileinkað sér fræði margra. Hann útskrifaðist sem stúdent af náttúru- og hestafræðibraut frá Fjölbrautaskóla Suðurlands árið 2011. Leið hans lá beinustu leið í Háskólann á Hólum þar sem hann stundar nám við hestafræði, vorið 2014 mun hann útskrifast sem reiðkennari. Glódís Rún

Glódís Rún er fædd árið 2002. Hún er hestastelpa af lífi og sál, fyrsta orðið var ekki mamma eða pabbi heldur hneggjaði hún þar sem hún stóð við gluggann og horfði á hrossin. Glódís Rún er mjög dugleg í hesthúsinu og sinnir þar mörgum hestum sem og verkum. Fyrsta mótið var firmakeppni hjá Ljúfi árið 2006 og daman þá 4 ára. Hún var á Jara og reið með barnaflokknum en keppti í pollaflokki. Þarna hreppti hún fyrsta sætið og þar með var ekki aftur snúið. Glódís Rún sigraði barnaflokk á LM 2011 á Vindheimamelum í Skagafirði á Kamban frá Húsavík þá 9 ára gömul og þar með yngsti knapi til að vinna barnaflokk. Þau endurtóku svo leikinn á LM 2012 í Víðidal í Reykjavík þar sem þau hlutu einkunnina 9.02 sem er hæsta einkunn sem hefur verið gefin á Landsmóti í hringvallagreinum. Auk þess á hún 9 Íslandsmeistaratitla, er margfaldur suðurlandsmeistari og hefur sigrað Reykjavíkurmeistaramót og Líflandsmót í sínum flokki undanfarin ár. Glódís æfir einnig körfubolta með Hamar í Hveragerði og leggur stund á píanónám hjá Tónlistarskóla Árnesinga. Védís Huld

Védís Huld er fædd árið 2004. Hún er, líkt og systir sín, hestastelpa af lífi og sál. Védísi Huld finnst skemmtilegast að fara hratt og stundar það að ríða á stökki upp brekkuna fyrir ofan hesthúsið og koma á yfirferðartölti til baka. Hennar fyrsta mót var firmakeppni Ljúfs árið 2009 og þar var hún í 2 sæti, stóra systir að flækjast fyrir henni. Védís Huld hefur náð frábærum árangri þrátt fyrir ungan aldur, keppti á Íslandsmóti í Mána árið 2011 þá sjö ára og var rétt við b úrslit. Hún keppti svo á LM 2012 í Víðdal í Reykjavík þá átta ára og var 9 eftir forkeppni með 8.49. Hún var önnur í fimi á Íslandsmóti 2012 hjá Geysi og hefur verið í úrslitum í barnaflokki á öllum stærstu mótunum síðan. Védís Huld æfir einnig fimleika og körfubolta með Hamri í Hveragerði og leggur stund á sellónám hjá Tónlistarskóla Árnesinga.

We have some sale horses right now🤩 if you are looking for your dream horse give us a follow on instagram and maybe we h...
28/09/2025

We have some sale horses right now🤩 if you are looking for your dream horse give us a follow on instagram and maybe we have what you are looking for!🥰🙏🏻

on insta

⭐️Andrea frá Einiholti⭐️🔹7yo🔹fivegaited 🔹really kind🔹good gaits🔹promising for pp1 and F1Fair price! Contact for more inf...
05/11/2024

⭐️Andrea frá Einiholti⭐️
🔹7yo
🔹fivegaited
🔹really kind
🔹good gaits
🔹promising for pp1 and F1

Fair price! Contact for more information😍

Védís Huld Sigurðardóttir

21/08/2023

Særós frá Þjórsárbakka

9 yo, 5 gaited mare✨ super safe and has good gaits🙌🏻❤️‍🔥

Takk Óskasteinn ❤️ English BelowEins og flestum hestamönnum er kunnugt féll Óskasteinn frá Íbishóli skyndilega frá í vik...
09/01/2022

Takk Óskasteinn ❤️ English Below

Eins og flestum hestamönnum er kunnugt féll Óskasteinn frá Íbishóli skyndilega frá í vikunni. Þessi hestur á sérstakan stað í hjarta Sunnuhvolsfjölskyldunnar sem og ræktandi hans. Okkur er því hugleikið að taka saman myndir af afkvæmunum og setjum við því hér nokkrar. Það væri gaman ef fleiri ættu myndir af afkvæmum hans myndu setja sama myllumerki/hashtagg svo þær færu allar á sama stað.
Takk Óskasteinn ❤️

Like many of you know Óskasteinn frá Íbishóli passed away last week. It was heartbreaking news for the Sunnuhvoll family since he and his owner have a special bond to our farm after good cooperation over the past years. We would like to gather photos of his offsprings to honour his memory and ask all of those who have a Óskasteinn offspring to post a picture of theirs with the hashtag . Thank you Óskasteinn ❤️

12/08/2021

Sold!
Leistur frá Vestra geldingaholti🔥
He’s a 12 year old gelding! Easy & safe to ride.

11/08/2021

SOLD!
Norma frá Ingólfshvoli❤️‍🔥
Big and beautiful safe mare, for a fair price!
Contact us for more info☺️

Erum ofurstolt af árangri okkar fólks á Íslandsmótum 2021. Systurnar í öllum úrslitum í unglinga- og ungmennaflokkum og ...
20/07/2021

Erum ofurstolt af árangri okkar fólks á Íslandsmótum 2021. Systurnar í öllum úrslitum í unglinga- og ungmennaflokkum og Arnar Bjarki í sterkum fimmgangsúrslitum🤩🏆👏🏼

Védís Huld með 3 titla🥇🇮🇸: F2/7.24, PP1/7.67 og samanlagður sigurvegari með 7,39 í einkunn. Hún var í öðru sæti í V1/7.27, P2/8.04, T4/7.5🥈og í 5 sæti í T1/7.28🏅

Glódís Rún með 4 titla🥇🇮🇸: V1/7.33, T2/7.67, 150m skeið á tímanum 14.94 og samanlagður í fjórgangsgreinum með 7.47 í einkunn. Hún var í öðru sæti í P2 með tímann 7.74🥈, þriðja sæti í bæði F1/6.4 og T1/7.39🥉

Arnar Bjarki varð þriðji í F1/7.66🥉og tólfti í V1/7.2 sem var dauðasætið. Það voru gefnar 11 tíur á mótinu og fékk Arnar Bjarki 7 af þeim á sína hesta, Örn hlaut tíu í forkeppni fyrir fet og restina átti Álfaskeggur en hann kom út í 9.8 fyrir fet í A úrslitunum. Álfaskeggur sótti sig allt mótið á skeiði og hækkaði sig um 1.7 í einkunn frá forkeppni til A-úrslita🤩

Það er því ekki hægt annað en að vera ánægður með árangurinn á Sunnuhvoli🌟
Glódís Rún Sigurðardóttir Védís Huld Sigurðardóttir Arnar Bjarki Sigurðarson
📸 Eiðfaxi frá Íslandi Brynja Gná Bergmann HeiðarsdóttirHestafréttir.is

GO and check out our Instagram account☺️ at the moment we are hosting a giveaway!✨-Model is Ársól frá Sunnuhvoli
02/01/2021

GO and check out our Instagram account☺️ at the moment we are hosting a giveaway!✨
-
Model is Ársól frá Sunnuhvoli

Glódís Rún Sigurðardóttir won the international young rider Blessaward!😍 Thank you for all the support☺️•Happy new year ...
02/01/2021

Glódís Rún Sigurðardóttir won the international young rider Blessaward!😍 Thank you for all the support☺️

Happy new year from the Sunnuhvoll team🎉🥳

Við erum mjög stolt af henni Glódísi Rún sem var valin efnilegasti knapi ársins. Til hamingju elsku Glódís Rún🥳✨🤩~We are...
18/12/2020

Við erum mjög stolt af henni Glódísi Rún sem var valin efnilegasti knapi ársins.
Til hamingju elsku Glódís Rún🥳✨🤩
~
We are extremely proud of Glódís Rún, who was chosen the most promising rider of the year.
Congratulations Glódís Rún🥳✨🤩

Við erum afar stolt af henni Urði okkar frá Sunnuhvoli sem hlýtur heiðursverðlaun á árinu. Urður er hornsteinn okkar ræk...
29/11/2020

Við erum afar stolt af henni Urði okkar frá Sunnuhvoli sem hlýtur heiðursverðlaun á árinu. Urður er hornsteinn okkar ræktunnar og erum við þakklát fyrir allt sem hún hefur gefið okkur og kennt í hrossaræktinni. Í stóðinu ber hún enn höfuð og herðar yfir dætrum sínum sem nú eru komnar í ræktun og öðrum hryssum sem þar eru. Mikill leiðtogi og hagaljómi, ljónstygg fyrst eftir köstun og var alltaf eftirtektavert hversu hratt, vel og lengi folöldin fylgdu henni.

-

We are very proud of our Urður from Sunnuhvoll that receives honorary price for offsprings this year. Urður has been the cornerstone of our breeding and we are very grateful for everything that she has given us and taught about horse breeding. Still to day she governs the heard proudly. She has a lot of charisma and a strong character that her offsprings assume at a very young age.

SOLDFor Sale - Zu verkaufen English and German below 👇🇩🇪🇬🇧🇮🇸 Þerna er fimm vetra hryssa undan Hróðri frá Refsstöðum og Þ...
26/10/2020

SOLD
For Sale - Zu verkaufen
English and German below 👇🇩🇪🇬🇧

🇮🇸 Þerna er fimm vetra hryssa undan Hróðri frá Refsstöðum og Þrá frá Háholti (7,97 ae klárhryssa)

Hún er frekar lítið tamin, þæg og meðfærileg en samt ekki fyrir algjöra byrjendur. Þerna er með gott jafnvægi á grunngangtegundunum en á ennþá eftir að ná meiri styrk á tölti, er í raun að klára gangsetningu. Frábært verkefni fyrir einhvern sem vill kaupa sér litfagra ræktunarhryssu eða framtíðar keppnis- og/eða reiðhest.

Verð 600.000.-

🇬🇧 Þerna is a five year old colorful mare after Hróður frá Refsstöðum and Þrá frá Háholti (7,97 total score as a fourgaiter).

She has been trained for a few months and has good balance in the basic gaits but the tölt still needs more time and training to develop its full potential. She has a good villingness, an easy mind and is fun to work with in all handling and caretaking.

Due to the good collaboration between Sunnaholt & Sunnuhvoll, Þerna can also be sold with the intent to be covered, both in Iceland and in Germany

Price: 3600 EUR

🇩🇪Þerna ist eine 5-jährige Stute mit außergewöhnlicher Farbe. Vater ist der bekannte Hróður frá Refsstöðum und Mutter ist die Þristur-Tochter Þrá frá Háholti (7.97 gesamt als Viergängerin).

Nach nur kurzer Zeit im Training zeigt Þerna gute Balance in ihren Grundgangarten und vielversprechende Ansätze im Tölt. Sie ist brav und unkompliziert im Umgang, hat einen guten Gehwillen und ist stets bemüht dem Reiter zu gefallen.

Sie würde sich besonders gut für einen Reiter eignen, der Freude daran hat sich mit seinem Pferd weiter zu entwickeln und das noch schlummernde Potential dieser talentierten Stute ans Tageslicht zu bringen.

Auch für Züchter ist Þerna aufgrund ihrer Farbe und Abstammung höchst interessant. Dank der guten Zusammenarbeit von Sunnuhvoll und Sunnaholt besteht die Möglichkeit Þerna inklusive eines Decksprungs entweder in Island oder in Deutschland zu erwerben.

€3600
Gestüt Sunnaholt

Address

Sunnuhvoll
Selfoss
816

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sunnuhvoll - Breeding - Horses for sale posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Sunnuhvoll - Breeding - Horses for sale:

Share