Kílhraun

Kílhraun Kílhraun - hrossarækt - horse breeding. Í Kílhrauni á Skeiðum má finna hross til sölu. Þar er stunduð hrossarækt og tamningar á öllum stigum.

Hrossaræktin okkar er frekar ung þó svo að hrossarækt hafi verið viðloðin Kílhraun um árabil. Fyrstu hrossin okkur fædd í Kílhrauni fæddust sumarið 2004. Síðan þá hafa okkur fæðst 1-2 folöld á ári en þeim fer fjölgandi. Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum e-mail, einkapóst hér eða hringja. Bjarni H. Ásbjörnsson: [email protected]
Lilja Össurardóttir: [email protected]

04/06/2022

Hestastúss er alltaf skemmtilegt. Hér er Ýmir að sýna sig en hann er undan Grósku frá Dalbæ og Skýr frá Skálakoti 🤩

Það er kalt í dag en bjart milli hryðja og þá er gott að fá tuggu 😀
30/01/2022

Það er kalt í dag en bjart milli hryðja og þá er gott að fá tuggu 😀

Heyskapur á síðustu metrunum.
23/08/2020

Heyskapur á síðustu metrunum.

Uppsveitadeildinni 2020 lauk í gær á Flúðum með keppni í tölti og fljúgandi skeiði. Fyrir lokakeppnina var baráttan um s...
14/03/2020

Uppsveitadeildinni 2020 lauk í gær á Flúðum með keppni í tölti og fljúgandi skeiði.
Fyrir lokakeppnina var baráttan um sigur knapa og liða hörð, enda efstu lið og knapar hníf jöfn.

Liðakeppninni lauk með glæsilegum sigri Kílhrauns sem hélt forystunni allan tíman í Uppsveitadeildinn þetta árið.

Til hamingju með sigurinn, Rósa Birna Þorvaldsdóttir, Ragnhildur Haraldsdóttir, Helgi Þór Guðjónsson og Þór Jónsteinsson.

Vel gert.

Hörkukeppni á milli knapa og liða í Uppsveitadeildinni 2020
22/02/2020

Hörkukeppni á milli knapa og liða í Uppsveitadeildinni 2020

ÚRSLIT FIMMGANGUR-UPPSVEITADEILD

Fimmgangur í Uppsveitadeildinni á Flúðum fór fram föstudagskvöldið 21 febrúar og óhætt er að segja að keppnin hafi verið hörð og spennandi !
Efstur eftir forkeppni var Jón Óskar á Örvari frá Gljúfri, annar var Þorgeir Ólafsson á Snilld frá Fellskoti, þriðji var Þórarinn Ragnarsson á Glað frá Kálfhóli og fjórðu voru Hekla Katharína Kristinsdóttir og Jarl frá Árbæjarhjáleigu II .

Efstur inn í B úrslit kom Reynir Örn Pálmason á Þristi frá Tungu. Annar var Jón William Bjarkason á Vöku frá Ásbrú, þriðju voru Rósa Birna Þorvaldsdóttir og Bragi frá Skriðu, fimmtu Karen Konráðsdóttir og Lind frá Hárlaugsstöðum og að lokum Ragnhildur Haraldsdóttir á Kappa frá Kambi. Nokkar sviptingar voru í B úrslitunum og fóru þau að lokum þannig að Karen Konráðsdóttir sigraði á Lind og unnu þær sér sæti á A úrslitum.

B úrslit

5 Karen Konráðsdóttir / Lind frá Hárlaugsstöðum2 6,62
6 Reynir Örn Pálmason / Þristur frá Tungu 6,52
7 Jón William Bjarkason / Vaka frá Ásbrú 6,29
8 Rósa Birna Þorvaldsdóttir / Bragi frá Skriðu 6,26
9 Ragnhildur Haraldsdóttir / Kappi frá Kambi 5,69

Næst á dagskrá voru A úrslitin. Frábær hross, mjög mjótt á munum og ljós að smávægileg mistök yrðu dýrkeypt. Þorgeir og Snilld og Þórarinn og Glaður héldu sínum sætum frá forkeppni, Karen og Lind hoppuðu upp um eitt sæti en Jón Óskar og Örvar náðu ekki jafngóðum sprettum á skeiði og í forkeppni og hröpuðu niður í fimmta sætið. Það var hinsvegar Hekla Katharína Kristinsdóttir sem stökk upp úr fjórða sætinu í það fyrsta með hinn glæsilega og jafnvíga Jarl frá Árbæjarhjáleigu II.

A úrslit
1 Hekla Katharína Kristins/Jarl frá ÁrbæjarhjáleiguII 6,79
2 Þorgeir Ólafsson / Snilld frá Fellskoti 6,69
3 Þórarinn Ragnarsson / Glaður frá Kálfhóli 2 6,67
4 Karen Konráðsdóttir / Lind frá Hárlaugsstöðum 2 6,57
5 Jón Óskar Jóhannesson / Örvar frá Gljúfri 5,64

Einstaklings og liðakeppnin er ekki síður spennandi nú þegar tvær greinar eru búnar. Stigahæsta lið fimmgangsins var lið STORM RIDER sem nú situr í þriðja sæti í liðakeppninni. Eftst stendur lið KÍLHRAUNS en lið ÁRBÆJARHJÁLEIGU saxaði á forskotið og situr í öðru sæti eftir gott gengi í fimmgangnum.
Efstur í einstaklingskeppninni er Þorgeir Ólafsson og jafnar í öðru til þriðja sæti einungis einu stigi á eftir Þorgeiri eru Rósa Birna Þorvaldsdóttir og Hekla Katharína Kristinsdóttir.

EINSTAKLINGSKEPPNI

KNAPI/LIÐ
1Þorgeir Ólafsson FRIÐHEIMAR/SKJÓL 36
2-3Rósa Birna Þorvaldsdóttir KÍLHRAUN 35
2-3Hekla K Kristinsdóttir ÁRBÆJARHJÁLEIGA 35
4Ragnhildur Haraldsdóttir KÍLHRAUN 33
5Helgi Þór Guðjónsson KÍLHRAUN 29
6Brynja Amble STORM RIDER 28
7Jón ÓskarBREKKA/HJARÐARHOLT/MIÐENGI 26
8Jón William Bjarkason MEISTARI LOFTUR 21
9-10 Árný Oddbjörg ÁRBÆJARHJÁLEIGA 19
9-10 Þórarinn Ragnarsson STORM RIDER 19

LIÐAKEPPNI

4G 5G SAMTALS
1 KÍLHRAUN 58 39 97
2 ÁRBÆJARHJÁLEIGA 46 43 89
3 STORM RIDER 35,5 45 80,5
4 FRIÐHEIMAR/SKJÓL 39 36,5 75,5
5 BREKKA/HJARÐARHOLT/MIÐENGI19,5 25 44,5
6 MEISTARI LOFTUR 12,5 27 39,5
7 BALDVIN OG ÞORVALDUR 19,5 15,5 35

Framkvæmdanefnd þakkar keppendum, dómurum og öðrum er að mótinu komu fyrir frábæra frammistöðu og vel unnin störf. Aðalstyrktaraðili deildarinnar eru FLÚÐASVEPPIR og við þökkum þeim kærlega stuðninginn.
Áhorfendum þökkum við fyrir komuna og minnum um leið á næsta mót sem verður föstudagskvöldið 13 MARS þegar keppt verður í tölti og skeiði.

Spennandi fimmgangur á föstudagskvöld á Flúðum.
19/02/2020

Spennandi fimmgangur á föstudagskvöld á Flúðum.

Föstudagskvöldið 21 febrúar næstkomandi verður keppt í fimmgangi í Uppsveitadeildinni í reiðhöllinni á Flúðum. Keppni hefst stundvíslega kl. 20.00
Það er nokkuð ljóst að keppni verður hörð í fimmgangnum þar sem hvergi verður neitt til sparað. Til leiks eru skráðir margir sterkir hestar, þar af 6 hross sem hlotið hafa 9 eða hærra fyrir skeið í kynbótadómi, m.a. tveir hestar með hvorki meira né minna en 10 fyrir skeið !

Aðeins tvö pör af þeim 9 sem riðu til úrslita í fyrra eru aftur skráð til leiks í ár en það eru Jón William Bjarkason og Vaka fá Ásbrú og Sólon Morthens og Katalína frá Hafnarfirði sem sigruðu fimmganginn í fyrra og verður spennandi að sjá hvað þau gera.

Veitingasalan verður að sjálfsögðu opin þar sem m.a. verður seld súpa og bjór og ýmislegt fleira og því er upplagt að mæta snemma og fá sér að borða áður en keppnin hefst.

Hér fyrir neðan er ráslisti kvöldsins, við hvetjum ykkur endilega til að mæta á Flúðir og fylgjast með, lifandi niðurstöður verða á facebook síðu Uppsveitadeildarinnar – Uppsveitadeildin 2020 endilega fylgist með þar ☺

Hestamannafélagið Smári Hestamannafélagið Smári
Hestamannafélagið Logi
Hestamannafélagið Trausti
Reiðhöllin á Flúðum

Eins og mörg undanfarin ár er Kílhraun með lið í Uppsveitadeildinni. Að þessu sinni er Rósa Birna Þorvaldsdóttir liðsstj...
01/02/2020

Eins og mörg undanfarin ár er Kílhraun með lið í Uppsveitadeildinni. Að þessu sinni er Rósa Birna Þorvaldsdóttir liðsstjóri fyrir harðsnúnu keppnisliði.

Hún stýrði liði sínu, sem sannur herforingi, og sigraði fjórgangskeppnina á Frá frá Sandhóli með glæsibrag, í fyrstu keppni ársins sem fram fór að kvöldi 31. janúar.

Ekki nóg með það heldur varð liðsfélaginn, Ragnhildur Haraldsdóttir á Úlfi frá Mosfellsbæ í öðru sæti og til að toppa kvöldið varð Helgi Þór Guðjónsson á Þór frá Selfossi í fimmta sæti.

Lið Kílhrauns skilaði því öllum keppendum fjórgangsins í A úrslit. Vel gert.

(mynd af keppnisliði Kíhrauns fengin af facebook síðu Uppsveitadeildarinnar 2020)

Askja frá Kílhrauni kastaði þessari fínu jörpu hryssu þann 11. júní. Hryssan fékk nafnið Freyja.
14/07/2019

Askja frá Kílhrauni kastaði þessari fínu jörpu hryssu þann 11. júní. Hryssan fékk nafnið Freyja.

Gná frá Kílhrauni í kynbótadómi. Knapi er Hans Þór Hilmarsson.
03/06/2019

Gná frá Kílhrauni í kynbótadómi. Knapi er Hans Þór Hilmarsson.

Address

Kílhraun
Selfoss
801

Telephone

+3548986463

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kílhraun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Kílhraun:

Share