24/04/2023
✝️Snjói fannst því miður dáinn í mosanum rétt hjá höfnum við landhelgisgæsluna í Keflavík. Við sendum eigendum og aðstandendum innilegar samúðarkveðjur 🕊💔
------------------------‐---------
SNJÓI ER TÝNDUR Í KEFLAVÍK FUNDARLAUN 50.000 / FINDER'S REWARD
UPPFÆRT: SNJÓI ER ENN TÝNDUR - nú hafa engar vísbendingar borist síðann hann hvarf þann 22. apríl og hefur nú eigandi heitið 50.000 kr. í fundarlaun
🚨 SNJÓI er 8 ára og er af tegundinni Chinese Crested, hann er rakaður og er hvítur á lit. Hann er með rauða hálsól. Hann var á Patterson svæðinu í Keflavík með eiganda sínum á laugardaginn kl 13 þegar hann hljóp í burtu, hann kom til baka um kl 16 en fældist aftur í burtu þegar aðrir hundar komu. Snjóli hljóp í átt að Ásbrú og sást seinast hlaupa í átt að Grindavíkurvegi. Snjóli þekkir svæðið. Hann hefur þó ekkert sést síðan um kl. 16 á laugardeginum, sama dag og hann hvarf. Við þurfum alla þá hjálp sem hægt er að fá.
Ath við megum ekki fljúga dróna á svæðinu.
Leitarspjall er í gangi, ef þið komist í leit kommentið og ykkur verður boðið í spjallið