Jón Kolbeinn Dýralæknir

Jón Kolbeinn Dýralæknir Almenn dýralæknaþjónusta og lasermeðferð.

15/05/2026

Ætli þetta sé jólakötturinn?

Sauðfjárbændur athugið.Nú eru margir sauðfjárbændur að láta fósturtelja hjá sér og margir geta því áætlað hvenær væntanl...
25/02/2026

Sauðfjárbændur athugið.
Nú eru margir sauðfjárbændur að láta fósturtelja hjá sér og margir geta því áætlað hvenær væntanlegur burður er hjá viðkomandi ám.

Varðandi bólusetningu með Blandaða bóluefninu frá Keldum, þá er nú mælt með því að það þurfi að líða a.m.k. 4 vikur frá grunnbólusetningu þar til booster er gefinn. Leiðbeiningarnar sem nú er mælt með að notast sé við eru því eftirfarandi: 4 vikur eða fleiri ættu að líða frá grunnbólusetningu og þar til seinni bólusetning er gerð. Sú seinni má vera gerð stuttu ( innan við 2 vikum) fyrir sauðburð því mótefni munu fljótt komast yfir í broddinn. Starfsmenn Keldna rannsökuðu þar síðasta vor lömb sem talin voru að drepist hefðu vegna slefsýkingar(E.coli), lömbin voru send til krufningar að Keldum og mörg af þeim greindust með blóðsótt, clostridumsjúkdóm ( Blandaða bóluefnið á að veita vörn ). Það er því umhugsunarvert fyrir bændur þar sem mikil slefsýki er til staðara að bólusetja allar fengnar ær tvisvar sinnum þar sem möguleiki er á að blóðsótt, clostridium sýkingar eru valdar að dauða lambanna en ekki eingöngu slefsýki (E.coli sýking).

Einnig er ég með Tribovax en ef menn eru að grunnbólusetja með því að þá þarf að gefa fyrsta skammt 4 til 6 vikum fyrir seinni bólusetningu og seinni skammt 8 til 2 vikum fyrir burð.

Calmex er róandi fæðubótarefni fyrir hross, hunda og ketti. Hefur reynst vel fyrir dýr sem er t.d. illa við flugelda. Á ...
28/12/2025

Calmex er róandi fæðubótarefni fyrir hross, hunda og ketti. Hefur reynst vel fyrir dýr sem er t.d. illa við flugelda. Á til Calmex á lager og verð við á Borgarflöt 7 kl 13 til 17 mánudaginn 29. Des. Einnig er hægt að hafa samband í skilaboðum eða síma 861 1986

Senn líður að áramótum með tilheyrandi látum sem fer illa í mörg dýr. Ég er með fæðubótaefni sem hefur róandi áhrif á hr...
22/12/2025

Senn líður að áramótum með tilheyrandi látum sem fer illa í mörg dýr. Ég er með fæðubótaefni sem hefur róandi áhrif á hross, ketti og hunda. Ég er með viðveru á Borgarflöt 7 í dag (mánudag 22.des) til kl 17. Verið velkomin

Verð með viðveru að Borgarflöt 7. Mánudaginn 22. desember kl. 13-17. Endilega kíkjið við ef ykkur vantar fóður eða annað...
20/12/2025

Verð með viðveru að Borgarflöt 7. Mánudaginn 22. desember kl. 13-17. Endilega kíkjið við ef ykkur vantar fóður eða annað, þó það væri ekki nema spjall.
Einnig hægt að hafa samband ef þið viljið panta tíma í bólusetningu eða heilsufarsskoðun.

Vetramil þófavax er sérstaklega samsett til að vernda þófa á hundum. Hundaþófar geta verið undir miklu álagi hvort sem e...
22/11/2025

Vetramil þófavax er sérstaklega samsett til að vernda þófa á hundum. Hundaþófar geta verið undir miklu álagi hvort sem er að sumri eða vetri. Ís, snjór, salt og gróft undirlendi sem dæmi, geta valdið þurrki og sársaukafullum sprungum. Vetramil þófavax hefur reynst mér vel við meðhöndlun á þófum sem verða oft þurrir og sárir yfir vetrartímann.

Sauðfjárbændur athugið. Ég er byrjaður að taka við bókunum í garnaveiki bólusetningar.Nú er kominn tími á garnaveiki ból...
24/10/2025

Sauðfjárbændur athugið. Ég er byrjaður að taka við bókunum í garnaveiki bólusetningar.
Nú er kominn tími á garnaveiki bólusetningar og hvet ég bændur til að hafa samband við mig sem fyrst svo að ég geti reynt að sameina ferðir og haldið aksturskostnaði sem lægstum.
Einnig hvet ég bændur til þess að heyra í mér sem fyrst varðandi pöntun á blönduðu bóluefni og lungnapestarbóluefni.
Ég tek að mér geldingar á hrútum, þar sem ég fjarlægji eistun með stuttri svæfingu, staðdeyfingu og verkjastilli þá í framhaldinu. Þessi aðferð hefur gefist vel og í flestum tilfellum án þess að hrútarnir missi átlyst. Þeir bændur sem vilja nýta sér þessa þjónustu samhliða garnaveikisbólusetningu er velkomið að hafa samband þannig að við getum gert þetta í sömu ferðinni.
Meðfylgjandi mynd var tekin af Skagfirskusólarlagi þegar ég var á leiðinni heim eftir vel heppnaða burðarhjálp snemma morguns í maí á síðasta ári.

Hestaeigendur athugiðÉg er með úrval fæðubótaefna til uppbygginga vöðvamassa og einnig fæðubótarefni fyrir hross sem þjá...
09/03/2025

Hestaeigendur athugið
Ég er með úrval fæðubótaefna til uppbygginga vöðvamassa og einnig fæðubótarefni fyrir hross sem þjást af magabólgum og magasári. Meðfylgjandi mynd sýnir brot af þeim fæðubótarefnum sem ég er með. Nánari upplýsingar 8611986

Sauðfjárbændur athugið.Varðandi bólusetningu með Blandaða bóluefninu frá Keldum, þá er nú mælt með því að það þurfi að l...
04/03/2025

Sauðfjárbændur athugið.
Varðandi bólusetningu með Blandaða bóluefninu frá Keldum, þá er nú mælt með því að það þurfi að líða a.m.k. 4 vikur frá grunnbólusetningu þar til booster er gefinn. Leiðbeiningarnar sem nú er mælt með að notast sé við eru því eftirfarandi: 4 vikur eða fleiri ættu að líða frá grunnbólusetningu og þar til seinni bólusetning er gerð. Sú seinni má vera gerð stuttu ( innan við 2 vikum) fyrir sauðburð því mótefni munu fljótt komast yfir í broddinn. Starfsmenn Keldna rannsökuðu síðastliðið vor lömb sem talin voru að drepist hefðu vegna slefsýkingar(E.coli), lömbin voru send til krufningar að Keldum og mörg af þeim greindust með blóðsótt, clostridumsjúkdóm ( Blandaða bóluefnið á að veita vörn ). Það er því umhugsunarvert fyrir bændur þar sem mikil slefsýki er til staðara að bólusetja allar fengnar ær tvisvar sinnum þar sem möguleiki er á að blóðsótt, clostridium sýkingar eru valdar að dauða lambanna en ekki eingöngu slefsýki (E.coli sýking).
Það bólefni sem bændur hafa verið að bólusetja sauðfé með gegn slefsýki (Necolipor) og gaf góða raun, fæst ekki lengur en það er komið annað bóluefni (Suiseng Coli/C) á markað sem hefur verið að gefa góða raun í Bretlandi. Það er bólusett 6 vikum og svo aftur 3 vikum fyrir burð. Ef bændur vilja bólusetja gegn slefsýki (E.coli) þá hvet ég þá til að hafa samband sem fyrst svo hægt sé að tryggja öllum nægjanlegt magn af bóluefni.
Einnig er ég með Tribovax en ef menn eru að grunnbólusetja með því að þá þarf að gefa fyrsta skammt 6 til 8 vikum fyrir burð og seinni skammt ekki seinna en 2 vikum fyrir burð.
Jón Kolbeinn
8611986

Ég vil vekja athygli hunda og kattaeiganda á því að ég tek að mér bólusetningar og ormalyfjagjafir, ég get komið heim ti...
14/02/2025

Ég vil vekja athygli hunda og kattaeiganda á því að ég tek að mér bólusetningar og ormalyfjagjafir, ég get komið heim til dýraeiganda eða þið getið pantað tíma hjá mér á messenger eða síma 8611986.
Þeir hunda- og kattaeigendur sem eru með dýrin sín skráð í Skagafirði geta sótt um endurgreiðslu frá Skagafirði fyrir ormalyfjagjöfinni. Ég mæli með því að ormahreinsa ung dýr og þau sem eru mikið úti oftar en einu sinni á ári.
Ég vil einnig vekja athygli á því að ég er ekki sá dýralæknir sem er að hreinsa í áhaldahúsinu

Fimmtudaginn 20. febrúar nk. býður dýralæknir skráðum hunda- og kattaeigendum upp á hreinsun gæludýra í Áhaldahúsinu, Borgarflöt 27 á Sauðárkróki. 

Hrossaeigendur athugiðNú eru margir komnir með hross á hús. Lúsasýkingar í hrossum er algengt vandamál. Ég er með duft t...
13/02/2025

Hrossaeigendur athugið
Nú eru margir komnir með hross á hús. Lúsasýkingar í hrossum er algengt vandamál. Ég er með duft til sölu sem er sáldrað yfir hrossin og hefur gefist vel við baráttunni við Hrossanaglúsina en það er eina ytra snýkjudýrið sem fundist hefur á hrossum hér á landi.
Fyrir áhugasama er hér linkur á grein sem birtist í Eiðfaxa 2006. Aðalhöfundur greinarinnar er Matthías Eydal en hann var okkar fremsti snýkjudýrafræðingur. https://www.researchgate.net/publication/272151718_Lusasykingar_a_islenskum_hrossum
Einnig er ég með ormalyf fyrir hross.
Meðfylgjandi mynd er úr greininni sem er nefnd hér að ofan.

Address

Sauðárkrókur
550

Telephone

+3548611986

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jón Kolbeinn Dýralæknir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category