Vinahús Heimapössun

Vinahús Heimapössun Vinahús er kærleiksrík heimapössun á höfuðborgarsvæðinu

Passa smáhunda og þá einn í einu til að geta sinnt þeim fullkomlega og dekrað 😉  (Nema ef frá sama heimli, þá tvo).  Ykk...
03/11/2024

Passa smáhunda og þá einn í einu til að geta sinnt þeim fullkomlega og dekrað 😉 (Nema ef frá sama heimli, þá tvo). Ykkur er velkomið að hafa samband .Er með lokaðan garð
MBK Heiða

Elsku krúttans KLAKI (1,5 ára Maltese) kom í sínu fyrstu heimsókn í Vinahús Heimapössun og það verður bara að segjast ei...
06/07/2024

Elsku krúttans KLAKI (1,5 ára Maltese) kom í sínu fyrstu heimsókn í Vinahús Heimapössun og það verður bara að segjast eins og er að hann er dásamlegur í alla staði! 🐶☀️🫶🏽. Kurteis, hlýðinn, skemmtilegur, blíður og góður og samt algjör töffari 🥰. Af öllu sem var brasað, og já hann var með í ÖLLU af athygli og forvitni… þá stendur það upp úr að hann eignaðist Coton de Tulier vinkonuna ESJU 🐶❤️🐶 og þau voru æðisgengin saman. Esja var í pössun í næstu íbúð/garði. Esja fór svo heim og KLAKI var sannarlega hryggbrotin og leitaði og leitaði að henni og bað um aðstoð við það 😔. En viti menn! Esja kom svo loksins aftur og KLAKI tók gleði sína á ný sem hélst alveg þangað til fólkið hans kom að sækja hann og þá var enn meiri gleði 😍😁🥰 Við hér í Vinahús heimapössun vorum svo tregar að skila krúttkallinum að það lá við að við settum miða á hurðina þar sem átti að standa: ” við erum fluttar erlendis og KLAKI með! 🤣😂🤣

Næstan til sögunnar kynnum við LONDON 🐶 (1,5 ára Cavalier) sem kom til okkar í Vinahús Heimapössun eins og ferskur haust...
30/06/2024

Næstan til sögunnar kynnum við LONDON 🐶 (1,5 ára Cavalier) sem kom til okkar í Vinahús Heimapössun eins og ferskur haustblær um mitt sumar ☀️LONDON er ljúfur, blíður, vinalegur og MJÖG aktívur og allt vekur forvitni hans og veiðieðlið. Ekki bara leikföng ⚽️☄️kisur 😽, fuglar 🪺 og flugur 🪰 heldur líka steinar 🧗‍♂️trjágreinar 🌳, laufblöð ☘️, plastpokar og rusl 🥽, regndropar 🌧️, sólargeislar ☀️ og reyndar ALLT sem hreyfist og hann sýnir linnulaust snilldartakta við að ná þessu öllu saman !!! 🤣. Gönguferðir, klapp og krútt komu auðvitað sterkt inn ásamt því að fá gott í gogginn. LONDON líkar barasta við alla; bæði hunda og menn 🙂. Glugginn átti líka hjarta hans 💜 ekki bara til að horfa út um heldur því að fá sér góðan lúr og sofa í gluggakistunni…💤 svona til að hvíla sig og safna kröftum fyrir næsta ævintýri… og það má með sanni segja að herra London 🇬🇧hafi séð okkur fyrir skemmtiatriðum með Circustöktum og listrænu tilburðum! Það skemmir svo heldur ekki fyrir hvað hann er gullfallegur 🥰.

Hún BIRTA okkar (7 ára Maltese) kom aftur til okkar í Vinahús Heimapössun og hún er nú orðin skemmtilega heimavön og ákv...
28/06/2024

Hún BIRTA okkar (7 ára Maltese) kom aftur til okkar í Vinahús Heimapössun og hún er nú orðin skemmtilega heimavön og ákveðin 🤣. Hún vill fá að ráða og helst að aðrir hundar liggi bara kylliflatir fyrir henni!!!! 🥰. Þessi litla dama fær oftast sínu framgengt og kann alveg að láta í sér heyra þegar henni mislíkar eitthvað. Sjálfri finnst henni hún megi nú alveg allt: þefa, fara inn í þeirra hús, borða þeirra mat og nammi en auðvitað er það ekki gagnkvæmt! BIRTA stendur vaktina og lætur vita af grunsamlegum (=öllum) hunda- og mannaferðum 🐶🐶 🚶‍♀️🚶‍♂️. Þessi litla dama kann alveg að láta í sér heyra þó lítil sé 😍Hún elskar kúr og notalegheit, að kíkja á heiminn 🔮ekki hvað síst í göngum og tekur helst nammi, helst stór bein fram yfir mat 🐶🍖. BIRTA okkar veit sko hvað hún vill, hún er alveg hreint dásamleg og er búin að innrita sig alla leið sem heiðursfastagestur hjá okkur í heimapössun 🌸🌻🌹

LÚLLI 🐶 (5,5 ára Mini Schnauser) kom til okkar í Vinahús Heimapössun í sína fyrstu dvöl - en auðvitað var hann búinn að ...
26/06/2024

LÚLLI 🐶 (5,5 ára Mini Schnauser) kom til okkar í Vinahús Heimapössun í sína fyrstu dvöl - en auðvitað var hann búinn að koma í heimsókn fyrst. Hann LÚLLI dúlli er svo ótrúlega góður, hlýðinn, ljúfur, hljóðlátur og og rólegur. Hann getur hreinlega setið úti í náttúrunni, alveg rólegur og horft á tilveruna heillengi 🗺️. Eða eins og mamma hans orðaði það: hann er gömul sál 🚨. Alltaf svo rólegur og yfirvegaður nema helst með bælið sitt og gærur/mottur á gólfinu-þær átti hann til að hrista hressilega og færa þær í annað rými! Og svo virðist matur “hverfa” af diskum ef pössunardaman skilur þá eftir á glámbekk!!! 😜🤣😝. LÚLLI er góður við alla 🐶❤️🫶🏽, hunda og menn nema blessuðu kisurnar 😾😽😿 þá eru engin rólegheit og þær mega vara sig!!! LÚLLI ❤️ elskar útiveru, göngur, gott í gogginn og af því er virðist að velta fyrir sér sjálfri lífsgátunni. Það var ljúft að fá LÚLLA í heimsókn í @ Vinahús heimspössun og við vonumst til að sjá hann aftur 🫶🏽❤️🐶.

Meistari MÍLÓ 🐶🐶🐶 (2gja àra Sheltie rakki) kom til okkar í Vinahús Heimapössun í sína fyrstu dvöl og hafði reyndar bara ...
21/06/2024

Meistari MÍLÓ 🐶🐶🐶 (2gja àra Sheltie rakki) kom til okkar í Vinahús Heimapössun í sína fyrstu dvöl og hafði reyndar bara alls ekki farið í pössun áður. Eðli máls samkvæmt var MÍLÓ svolítið óöruggur í upphafi en smám saman varð hann öruggari með sig og sýndi sínar mörgu, skemmtilegu hliðar 😍. MÍLÓ er ekki bara ótrúlega fallegur heldur líka ljúfur, hlýðinn og kurteis ❤️. MÍLÓ er mjög mannelskur, sérstaklega gagnvart börnum. Hann og Aron Leví (2gja ára ömmubarn) urðu strax góðir vinir og MÍLÓ fór mjög varlega nálægt honum. 💜. Er ekki merkilegt hvað dýrin geta verið næm? 🫶🏽. Sömuleiðis vildi MÍLÓ kynnast öllum hundum sem urðu á vegi hans- því fleiri því betra! Og alltaf var hann kurteis og prúður. Og já, auðvitað elskaði hann gönguferðir! 🚶‍♀️🚶‍♂️. Það var ljúft að kynnast honum MÍLÓ og sjá hann blómstra meir og meir 🌻🌸🌹eftir því sem tíminn leið og sýna allar sínu einstöku hliðar. Við vonum auðvitað að MÍLÓ komi aftur og sem oftast til okkar í heimapössun

Einn af okkar VIP fastagestum og stôrvinur okkar HÚGÓ ❤️ (3, French Bulldog) kom í eina af sínum heimsóknum í Vinahús He...
15/06/2024

Einn af okkar VIP fastagestum og stôrvinur okkar HÚGÓ ❤️ (3, French Bulldog) kom í eina af sínum heimsóknum í Vinahús Heimapössun. Eins og ferskur andvari með sumarið ☀️ 🌸🌻 góða skapið sitt og gleðina. Húgó og ARON LEVÍ (2, mannabarn) eru bestu vinir 🐶👦 Húgó fer einstaklega varlega að ARONI en vill vera með honum og gera allt eins: leika, borða, sofa og bara ALLT. þeir tveir eiga svo fallegt samband. HÚGÓ er forvitinn, uppátækjasamur og fyndinn. Hann dundar sér í garðinum, leikur með bangsa og bolta eða Frisbí. Hann heilsar öllum og er vinur allra og er steinhissa á því að allir vilji ekki leika við hann! Þá verða stóru 👀 augun hans risastór! Hann er þvílíkur gullmoli hann HÚGÓ okkar og gott að vita til þess að hann kemur alltaf aftur 🥰

Address

Grundarhús 7
Reykjavík
112

Telephone

+3548696276

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vinahús Heimapössun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Vinahús Heimapössun:

Share

Category