Heiðarbóls labrador

Heiðarbóls labrador Hundarnir okkar eru ISFtCh Heiðarbóls Dimma og ISFtCh Huntingmade Atlas ásamt Heiðarbóls Esju, ISFtCh Kola 2012-2025 er upphaf okkar ræktunar.

Markmið er að rækta hentuga hunda til þjálfunar og veiði sem eru að auki ljúfir og góðir heimilishundar Suðurhjara Atlas er fæddur 26 desember 2006 og hér er slóð á árangur og upplýsingar um hann.http://retriever.is/Data/DogProfile.asp?pedID=2836 , Atlas féll frá 14 febrúar 2017
Kola er fædd 27 mars 2012 og hér er slóð á upplýsingar um hana http://retriever.is/Data/DogProfile.asp?pedID=-1884569632


Heiðarbóls Dimma fæddist 17 febrúar 2017, hér er slóð á upplýsingar um hana: http://www.retriever.is/Data/DogProfile.asp?pedID=949970035
Huntingmate Atlas er fæddur 24 maí 2017, við eigum hann með vinum okkar í Hrafnvíkur labrador Magga og Hólmfríði, hér er slóð á upplýsingar um hann. https://data.retriever.is/DogProfile.asp?pedID=1569478550

Í dag var haldið fimmta veiðipróf sumarsins við Tjarnhóla og tveir Heiðarbólshundar að taka þátt.  Ásmundur Guðnason tók...
06/06/2026

Í dag var haldið fimmta veiðipróf sumarsins við Tjarnhóla og tveir Heiðarbólshundar að taka þátt.
Ásmundur Guðnason tók þátt í BFL (byrendaflokki) með Heiðarbóls Ösku og hlutu þau 1.einkunn.
Arnbergur Þorvaldsson tók þátt í OFL (opinn flokkur) með Heiðarbóls Stjörnu í Hönnuhúsi, þau hlutu 2.einkunn.

Frábær árangur hjá þeim köppum, til hamingju.

Hrútakofinn Hrútakofinn
Dýralíf

Við Esja tókum þátt í tveimur veiðiprófum á vegum Retrieverdeild HRFÍ um helgina.Norskur dómari Trond Valdersnes dæmdi o...
24/05/2026

Við Esja tókum þátt í tveimur veiðiprófum á vegum Retrieverdeild HRFÍ um helgina.

Norskur dómari Trond Valdersnes dæmdi og setti upp þessi próf.

Fyrir þessa helgi höfðum við tekið þátt í tveimur fyrstu prófum ársins og fengið 1.einkunn á báðum prófunum. Markmiðið var því að ná 1. einkunn í BFL þessa helgi. Þá værum við búin að uppfylla skilyrði til að fá titilinn BFLW-26. Í stuttu máli tókst það vel því við fengum 1.einkunn á laugardeginum.

Það var því tekinn séns á að fara með þessa ungu tík upp í OFL (opinn flokk) sem er talsvert stökk og krefst meiri vinnu af okkar hálfu og samstarfs. Trond setti upp mjög skemmtilegt próf sem var talsvert krefjandi en jafnframt skemmtilegt. Við Esja nutum okkar vel í prófinu og fengum fína umsögn sem lesa má á vef retriever deildar HRFÍ. https://data.retriever.is/DogProfile.asp?pedID=2132336912

Esja er einstaklega skemmtilegur hundur að vinna með og gefandi að þjálfa hana og hlakka ég til að vinna með henni næstu árin.

Við þökkum Retrieverdeild fyrir skipulag á veiðiprófum, dómara, fulltrúa, prófstjóra og öðru starfsfólki sem gerði þessa helgi möguleg kærlega og af einlægni fyrir sitt framlag og að gera þetta mögulegt. Eins þökkum við þátttakendum og öðrum fyrir einstaklega skemmtilega helgi og óskum öllum til hamingju með sína hunda, við sáum frábæra hunda vinna þessa helgi og framtíðin er björt hjá okkur.

Hvet ykkur sem eigið retriever hund að kynna ykkur starf deildarinnar og þið eruð hjartanlega velkomin að fylgjast með. Dagskrá veiðiprófa er hér https://retriever.is/wp-content/uploads/2026/03/Auglysing-med-veidiprofum-2026-1-scaled.jpg

Við í Heiðarbólsræktun fóðrum okkar hunda með UniQ fóðri frá Dýralíf, afar sátt við feld, orkustig og síðast en ekki síst frábæra þjónustu. Heimkeyrsla á fóðri og allar þær vörur sem við þurfum fyrir þjálfun og umhirðu á hundunum okkar.

www.dyralif.is
UniQ Foods - For uniq dogs
Dýralíf

27/04/2026

Huntingmate Atlas var heldur betur sáttur þegar við komum að góðum skafli undir Reykjaborginni í morgun.

Hann renndi sér aftur og aftur niður og spretti úr spori eins og belja að vori á milli.

Það var gaman að fylgjast með honum haha.

Aase Helen Ramsrud Gjøtterud

Í dag tókum við Esja þátt í okkar fyrsta veiðiprófi fyrir sækjandi hunda.Prófið var haldið við Seltjörn við Grindavíkura...
25/04/2026

Í dag tókum við Esja þátt í okkar fyrsta veiðiprófi fyrir sækjandi hunda.
Prófið var haldið við Seltjörn við Grindavíkurafleggjara.

Þórhallur Atlason Tóti var dómari og setti upp flott próf í BFL og OFL. Við tókum þátt i BFL (Byrjendaflokki)

Það voru 15 flottir hundar í prófi í dag og þar af 9 í BFL. Prófið rann skemmtilega og margir hundar og stjórnendur að gera góðan dag.

Við Esja skiluðum okkar og hlutum 1.einkunn og merkt dummy frá deildinni.

Ég var að leika mér að taka myndir og fékk Ása vin minn til að mynda meðan ég var í prófi. Hér eru nokkrar myndir af okkur Esju frá því í dag.

Kærar þakkir fyrir okkur, sjálfboðaliðar sem stóðu að prófinu og unnu við það, dómarar og Retrievredeildin fyrir þennan frábæra viðburð.

Tók létta æfingu með Heiðarbóls Esju og tók sumarriffilin með að þessu sinni.  Hér eru smá sýnishorn.
24/04/2026

Tók létta æfingu með Heiðarbóls Esju og tók sumarriffilin með að þessu sinni. Hér eru smá sýnishorn.

Námskeið fyrir retriever hunda.Heiðarbólslabrador stendur fyrir námskeiðum í apríl og maí fyrir retrieverhunda. Kennari ...
06/04/2026

Námskeið fyrir retriever hunda.

Heiðarbólslabrador stendur fyrir námskeiðum í apríl og maí fyrir retrieverhunda. Kennari verður Heiðar Sveinsson

Annarsvegar er um að ræða byrjendanámskeið, miðað er við að hundar séu 7 mánaða eða eldri og ekki fengið þjálfun fyrir veiði eða sækiþjálfun.
Hinsvegar er retriever námskeið sem ég kalla 1.fasa fyrir hunda sem hafa fengið grunnþjálfun.

Námskeiðin verða á þriðjudagskvöldum og fyrsti tími verður 21.apríl kl.17.30, retriever námskeið 1.fasi eru svo seinna um kvöldið. Tímar geta breyst eftir aðsókn og/eða aðstæðum.

Hvolpanámskeið fyrir 4-7 mánaða hvolpa hefur ekki verið tímasett en tekið við umsóknum og unnið með það í framhaldi.

Bíð einnig uppá einkatíma í samráði við hvern og einn.

Hef unnið markvisst með retrieverhunda í 19 ár og verið virkur þátttakandi í veiðiprófum, sótt námskeið og sinnt námskeiðshaldi ásamt því að lesa mér til og sinna þjálfun af metnaði.

Námskeiðið er 6 tímar og 1,5-2 tímar eftir verkefnum og aðsókn.
Verð kr.40.000,-

Nánari upplýsingar í síma 8255219.

Ef áhugi vinsamlega staðfestið þáttöku í skilaboðum, tölvupósti [email protected] eða í síma 8255219

Heiðar Sveinsson

OFLW-19 FTW-20 og 23 ISFTCH Heiðarbóls Dimma er 9 ára í dag.Dimma er úr okkar fyrsta goti undan Kolu og Ross.  Hún hefur...
17/02/2026

OFLW-19 FTW-20 og 23 ISFTCH Heiðarbóls Dimma er 9 ára í dag.

Dimma er úr okkar fyrsta goti undan Kolu og Ross.

Hún hefur verið hvers manns hugljúfi frá upphafi (utan nagtímabilsins sem var svolítið krefandi). Einstaklega ljúf og góð í þjálfun, yfirveguð og vinnusöm.

Dimma hefur gert góða hluti á veiðiprófum og í veiði og gotið 3 gotum samtals 25 hvolpum. Sannarlega tekið til hendinni, drottningin er ofurhundur sem okkur þykir ákaflega vænt um.

Í morgun fór hún með okkur sem oftar á Úlfarsfellið og tók virkan þátt í að rannsaka hverjir hefðu komið þangað á undan okkur og hvað væri helst að frétta. Í lok ferðar tókum við um 200 metra línu upp hlíðina og í gegnum holt og hæðir. Hún sýndi að hún hefur engu gleymt og tók beina línu óháð landslagi. Kom inn af varkárni enda komin á sjötugsaldurinn haha.

Esja dóttir hennar fór sömu leið með bravör.

Dimma er fóðruð á UniQ basic fóðri og fær dass af laxaolíu á morgnanna. Feldur og orka í góðu lagi. Allir okkar hundar eru fóðrarið á UniQ Basic fóðri.

Að loknum svona morgni þegar kalt er set ég Dimmu stundum í yfirbreyðslu til að hún haldi lengur hita í vöðvum og liðum. tek hana úr þessu þegar við komum heim og finn að hún er öll heit og fín. hér er linkur á ábreiðuna. Hún er líka einstaklega heppilegt til að þurrka hunda eftir vatnasull. 15 mínútur plús í ábreiðunni og þeir eru þurrir og fínir þegar við komum heim. https://dyralif.is/collections/abreidur-kapur-og-vesti/products/siccaro-smart-thurrkabreida

Það eru forréttindi að njóta hundanna okkar svona lengi og því vel við hæfi að huga eins vel að heilsu og umhirðu og hægt er.

Dýralíf
UniQ Foods - For uniq dogs

Kuldalegt á æfingu í dag, öðru leiti frábærar aðstæður og bara skemmtilegt að viðra sig og hunda.Þórhallur Atlason Tóti ...
15/02/2026

Kuldalegt á æfingu í dag, öðru leiti frábærar aðstæður og bara skemmtilegt að viðra sig og hunda.

Þórhallur Atlason Tóti Ásmundur Guðnason Hrútakofinn Hrútakofinn Réttarholts ræktun - Labrador

www.Dýralíf

Heiðarbóls gengið óskar ykkur Gleðilegrar hátíðar.Það var greinilegt í göngutúrnum einn morguninn að það var stuð í hópn...
28/12/2025

Heiðarbóls gengið óskar ykkur Gleðilegrar hátíðar.

Það var greinilegt í göngutúrnum einn morguninn að það var stuð í hópnum og almenn ánægja með hreyfingu og samveru.

Heiðarbóls Dimma, Heiðarbóls Esja, Heiðarbóls Krumm og Huntingmate Atlas.

UniQ Foods - For uniq dogs
Dýralíf

19/12/2025

Address

Viðarrimi 41
Reykjavík
112

Telephone

+3548255219

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heiðarbóls labrador posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Heiðarbóls labrador:

Share

Category