HEYNET - sparaðu TÍMA, PENINGA og HEY ;) TILBOÐ - 4 heypokar á 12.800/ 3200 pr.stk + vsk
Mikið úrval - sérsníðum eftir óskum. Gæða net, endingargott og sterkt. Venjuleg og "Slow feed" net.Staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Sendum hvert sem óskað er og þjónusta heim að dyrum á höfuðborgarsvæðinu.Pantanir í pm eða s 8605558
Sitt sýnist hverjum um að gefa hey í gólfið, þeir sem það hafa reynt kunna því
vel meðan hrossin sóða ekki heyinu undir sig og út um alla stíuna. Ef gefið er á gólfið þarf heyið að vera mjög vel verkað og lystugt, að öðrum kosti er hætt við að hrossin róti því undir sig. Einnig virðist það breytilegt hversu mikið hrossin róta í heyi. Einstaka hross rótar því út um allt þótt það sé eitt í stíunni og heyið gott. Að gefa hey í net er heldur tafsamara eins og gefur að skilja en engin frágangssök í minni húsum. Kosturinn við netið er sá að heyið nýtist vel og hrossin eru lengur að innbyrða það minni hætta á ormasmiti eða að hross borði óæskileg efni sem leynst geta í spæni.