08/11/2026
Kanntu brauð að baka? Eða jafnvel köku? 🍰🥖
Nú fer heldur betur að styttast í okkar árlega jólabasar sem verður haldinn laugardaginn 28. nóvember kl. 11:30 og okkur vantar eitthvað af gómsætu heimabökuðu góðgæti á basarinn.
Ef þú værir til í að baka köku, brauð, smákökur eða eitthvað annað gómsætt og gefa á basarinn okkar, þá væri það mjög vel þegið. ❤️
Allur ágóði rennur til Kattholts og hjálpar okkur að halda áfram okkar mikilvæga starfi fyrir kisurnar. 🐱❤️
📍 Móttaka á bakkelsi: Kattholt, Stangarhylur 2, laugardaginn 28. nóvember milli kl. 9:00 og 11:00.
Tökum vel á móti öllum bakstri! 🥰
Með fyrirfram þakklæti og jólakveðjum, Kisurnar og starfsfólkið í Kattholti ❤️🐾
(Kisur á myndum hafa núþegar fengið framtíðarheimili)