23/09/2025
Það er okkur mikill heiður að kynna nýjasta högnan í ræktuninni okkar.
– Shadow’s Creek El Chapo.
Hann kemur frá virtum ræktanda og góðri vinkonu minni, Emilly hjá Shadow’s Creek Maine C**n, og erum við afar þakklát fyrir að hafa fengið þennan glæsilega kött í okkar hendur.
El Chapo er einstaklega vel byggður högni með sterka beinabygging, frábæran feld og flottan makka, fallegan svip og frábært skap. Hann ber með sér þá eiginleika sem við leggjum áherslu á í ræktun okkar og mun án efa verða mikilvægur liður í áframhaldandi ræktunarstarfi.
Við hlökkum til að fylgjast með framþróun hans og sýna ykkur nánar hversu einstakur hann er, bæði í útliti og skapgerð.