13/11/2025
Takk Flokkur fólksins ! ❤ Nú mega gæludýr vera í fjölbýli - umburðarlyndið gagnvart gæludýrum eykst smátt og smátt 🥰
Ég velti fyrir mér hversvegna menning okkar er komin hingað.
Hversvegna er umburðarlyndi gagnvart einu dýri minna eða meira heldur en öðru. Kannski er það einfalt í útskýringu þegar maður hefur lesið meira en ég gerði í sögutímum í framhaldsskóla en það samanstóð af Eddukvæðum (sem ég skil heldur ekki) og að mig minnir eitthvað varðandi Skúla fógeta en kennarinn var svo stórkostlega leiðinleg að ég lagði það ekki á minnið og féll svo reyndar í kjölfarið ...
En það sem ég velti reglulega fyrir mér afhverju menningin okkar hefur skapað svo lítið umburðarlyndi fyrir umburðarlyndu, trygglyndu, þolinmóðu ferfættu vinum okkar, hundum. Þær kvaðir sem settar eru á hundana og þar með eigendur þeirra hefur í gegnum tíðina orðið samfélagslega samþykkt að þeim mörkum að hundaeigendur sjálfir fylgja áfram í meðvirkni. Fyrir ykkur sem ekki þekkið til skal ég útskýra afhverju það er ekki skrýtið, það er að segja þetta með meðvirknina. Þegar þú ákveður að fá þér hund breytistu ósjálfrátt í annars flokks þjóðfélagsþegn. Þú þarft fyrst að fá leyfi, leyfi frá yfirvöldum til að halda hund. Það er ekki sjálfgefið og í flestum sveitarfélögum er það bannað, svona eins og það er bannað að hafa kind í stofunni hjá þér ef þú býrð í þéttbýli. Nú ef þú vogar þér að fá þér hund búandi í þéttbýli skaltu ekki fá þér meira en tvo. Því það er sko bannað að fá þér fleiri. Fyrir þetta skaltu greiða í kringum 40.000 krónur á hverju einasta ári. Hvað færðu í staðinn ? Þú færð stálheiðarlega ormahreinsitöflu og tryggingu gagnvart þriðja aðila þegar (ekki ef) hundurinn þinn veldur öðrum skaða. Setjum þetta með ormalyfin í samhengi. Það væri hægt að kaupa ormalyf fyrir um það bil 150 hunda fyrir hundaleyfisgjöldin af 2 hundum (ég féll líka í stærðfræði og er of óþolinmóð til að reikna nákvæmt gjald, þið skiljið hvert ég er að fara).
Svo er það umburðarlyndi gagnvart skepnunni sjálfri.
Á einhverjum tímapunkti fórum við líka að gera þá kröfu að dýrið og einstaklingurinn hundurinn má ekki undir neinum kringumstæðum sýna okkur annað en að hafa skapgerð í að ganga einn hring með eiganda sínum í hverfinu og láta sér lynda við börn, ókunnuga, aðra hunda, ókunnuga hunda, öll hljóð og hundar mega heldur ekki sýna hræðslu eða bregðast við með þeim hætti sem þeim er eðlislægt sem jú, oftar en ekki er að bíta.
Það að hundur bíti er eitthvað sem gerist, hundar bíta, stundum bíta þeir fast, stundum bíta þeir laust, stundum bíta þeir afþví að þeir gleymdu sér í smá stund, stundum bíta þeir afþví að þeir vildu passa sig, afkvæmi sitt, verja eiganda, eða bitu vegna sársauka.
Þegar hundur bítur er ekki spurt afhverju, heldur eru lög og reglugerðir á þann hátt að hundurinn er réttlaus og eigandi hans þar með. Hundurinn beit og þá fara heykvíslarnar á loft. Hundurinn skal aflífaður. Í seinni tíð hefur þetta þó breyst örlítið og fólk getur mótmælt ákvörðun um aflífun en eftir situr að menningin, hefðin og reglurnar eru orðnar það sem þær eru í dag.
Hundar bíta, hestar geta slegið og hrekkt, kindur stanga, svín bíta, hænur gogga, kettir klóra, beljur hlaupa á eftir þér og reyna físískt að drepa þig ! En bara hundurinn og hans eigandi þurfa að svara fyrir með lífi sínu sem ákveðið er af yfirvöldum.
Það er eðlilegt að hafa umburðarlyndi fyrir öllum heimsins mögulegu og ómögulegum aðstæðum sem upp geta komið í mannanna samfélagi, hvort heldur sem er gagnvart ofnæmisvaldinum ösp sem plantað er algerlega án þess að greitt sé fyrir það eða ég spurð um kostnað við ofnæmislyf. Pústlausi patrol nágrannans sem mengar hreinu lökin á snúrunum hjá mér eða helvítis kvígunni sem var bara að bera í fyrsta skipti og hélt að hún ætti að drepa mig.... Umburðarlyndi kostar ekkert, deilum því að vild.
Læt fylgja mynd af þessum hesti .... Hann hefur handleggsbrotið mig, hann hefur bitið mig, hann gerði heiðarlega tilraun til að tábrjóta mig en enginn hefur gert kröfu á að gróðursetja hann.
Enda er hann bestur 😅