07/04/2026
Lið Vöðla/Snilldarverks sigrar Suðurlandsdeild Eques 2026
Eftir magnaða keppni í Suðurlandsdeild Eques var það lið Vöðla/Snilldarverks sem stóð uppi sem sigurvegari á 10 ára afmæli deildarinnar.
Í keppnum kvöldsins voru tvö lið jöfn í skeiði en það voru lið Bakkakots og Krappa en í töltinu var það lið Vöðla/Snilldarverks.
Lið Vöðla/Snilldarverks skipa atvinnumennirnir Ásmundur Ernir Snorrason, Stella Sólveig Pálmarsdóttir og Ólafur Ásgeirsson. Áhugamenn liðsins eru Åsa Ljunberg, Hannes Brynjar Sigurgeirsson og Elín Hrönn Sigurðardóttir.
Lið Vöðla/Snilldarverks átti magnaðan vetur. Liðsmenn þeirra tóku allir þátt í deildinni.
- Í fjórgangi urðu atvinnumenn liðsins í 3.-4. og 6. sæti og áhugamenn í 1. og 8. sæti.
- Í fimmgang urði atvinnumenn liðsins 5. og 17. sæti.
- Í T2 varð atvinnumaðurinn 7.-8. sæti og áhugamaðurinn í 2. sæti.
- Í Parafimi varð parið í 3. sæti.
- Í skeiði varð atvinnumaðurinn í 1. sæti og áhugamaðurinn í 6. sæti.
- Í tölti urðu atvinnumenn liðsins í 3. og 4. sæti og áhugamenn liðsins í 3. og 10. sæti.
Gríðarlega flottur og jafn árangur sem skilaði liðinu til sigurs og óskum við þeim innilega til hamingju!
Stigahæstu knapar kvöldsins komu báðir úr liði Árbakka/Árbæjarhjáleigu II en það var í flokki atvinnumanna Gústaf Ásgeir Hinriksson og flokki áhugamanna Arney Ólöf Arnarsdóttir.
Heildarniðurstaða liðakeppninnar er eftirfarandi:
Sæti Lið Stig
1. Vöðlar/Snilldarverk 307
2. Árbakki/Árbæjarhjáleiga 294,5
3. Miðkot/Skeiðvellir 255
4. Bakkakot 246
5. Krappi 239,5
6. Raflagnaþjónusta Selfoss 231,5
7. Hestefli 230
8. Húsasmiðjan 226,5
9. Kastalabrekka 188
10. Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás 180,5
11. Wicked viking 175,5
S*x stigahæstu knapar í flokki atvinnumanna
Sæti Knapi lið Stig
1. Gústaf Ásgeir Hinriksson Árbakki/Árbæjarhjáleiga 99,5
2. Ásmundur Ernir Snorrason Vöðlar/Snilldarverk 91,5
3. Sigurður Sigurðarson Krappi 87
4. Malin Anderson Wicked viking 66,5
5. Ólafur Þórisson Miðkot/Skeiðvellir 64,5
6. Jón Ársæll Bergmann Bakkakot 63,5
S*x stigahæstu knapar í flokki áhugamanna
Sæti Knapi lið Stig
1. Arney Ólöf Arnardóttir Árbakki/Árbæjarhjáleiga 79,5
2. Pernilla Göransson Húsasmiðjan 77
3. Þórdís Sigurðardóttir Raflagnaþjónusta Selfoss 68,5
4. Rúnar Freyr Rúnarsson Bakkakot 63,5
5. Sarah Maagaard Nielsen Miðkot/Skeiðvellir 61,5
6. Heiðdís Arna Ingvarsdóttir Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás 60
Niðurstöður kvöldsins voru eftirfarandi.
SKEIÐ - Atvinnumenn
Sæti Knapi Hross
1 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II
2 Þorgils Kári Sigurðsson Flugdís frá Kolsholti 3
3 Sigurður Sigurðarson Glettir frá Þorkelshóli 2
4 Jón Ársæll Bergmann Gullborg frá Læk
5 Gústaf Ásgeir Hinriksson Bríet frá Austurkoti
6 Malin Marianne Andersson Lukka frá Syðra-Langholti
SKEIÐ - Áhugamenn
Sæti Knapi Hross
1 Hinrik Ragnar Helgason Stirnir frá Laugavöllum
2 Hallgrímur Birkisson Amalía frá Þjóðólfshaga 1
3 Heiðdís Arna Ingvarsdóttir Von frá Ási 1
4 Pernilla Therese Göransson Lukka frá Hvalnesi
5 Malou Sika Jester Bertelsen Höfði frá Bakkakoti
6 Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg Rangá frá Torfunesi
TÖLT - Atvinnumenn
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Hulda Gústafsdóttir Flauta frá Árbakka 7,61
2 Ólafur Ásgeirsson Fengsæll frá Jórvík 7,61
3-4 Ásmundur Ernir Snorrason Þróttur frá Syðri-Hofdölum 7,17
3-4 Gústaf Ásgeir Hinriksson Bútur frá Litla-Dal 7,17
5-6 Malin Marianne Andersson Vígur frá Einiholti 6,94
5-6 Jón Ársæll Bergmann Dimmir frá Varmalæk 6,94
TÖLT - Áhugamenn
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Soffía Sveinsdóttir Skuggaprins frá Hamri 6,89
2 Elín Hrönn Sigurðardóttir Framsýn frá Skeiðvöllum 6,83
3-4 Arney Ólöf Arnardóttir Barón frá Herríðarhóli 6,44
3-4 Pernilla Therese Göransson Bylur frá Kvíarhóli 6,44
5-6 Þórdís Sigurðardóttir Árvakur frá Minni-Borg 6,28
5-6 Sarah Maagaard Nielsen Djörfung frá Miðkoti 6,28
Nánari niðurstöður má nálgast í HorseDay appinu.
Stjórn deildarinnar vill þakka öllum sem komu að deildinni hvort sem það voru áhorfendur, styrktaraðilar, sjálfboðaliðar, keppendur eða dómarar.