12/06/2026
Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um nosework
🐶 Hundur sér heiminn fyrst og fremst með nefinu, ekki augunum.
👃 Hundur hefur allt að 300 milljónir lyktarnema en maðurinn aðeins um 5–6 milljónir.
🧠 10 mínútna nosework geta þreytt hund jafn mikið og löng gönguferð, því heilinn vinnur á fullu við að greina lyktina.
🐾 Í nosework er hundurinn kennarinn. Hlutverk stjórnandans er að fylgjast með og treysta nefinu.
🎉 Allir hundar geta stundað nosework, óháð aldri, stærð, getu eða tegund.
🌬️ Vindur, hiti og raki breyta því hvernig lykt ferðast, þannig að sama felan getur verið allt öðruvísi frá degi til dags.
🏆 Það er enginn „fullkominn“ leitarstíll. Sumir hundar vinna hratt, aðrir hægt og nákvæmlega – báðir geta verið frábærir.
💛 Feimnir hundar fá oft meira sjálfstraust í nosework, því þeir fá að vinna sjálfstætt og leysa verkefnið á eigin forsendum.
👃 Hundar geta greint örsmáar lyktaragnir sem við finnum alls ekki fyrir.
🥊 Nosework byggir á einni einfaldri reglu: Að hafa gaman saman! 🥳