14/05/2025
Reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni.
NÁMSKEIÐ SUMARIÐ 2025
Haldnar verða tvær hestasumarbúðir í júní 2025 örfá pláss laus.
Námskeiðin okkar hafa verið vinsæl síðustu ár og sömu börnin komið aftur og aftur.
Námskeiðsgjald er 95.000kr
Hópar í boði:
9-13. júní - Hestasumarbúðir fyrir 7-12 ára
16-20. júní - Hestasumarbúðir fyrir 12-15 ára
Hér að neðan má finna nánari upplýsingar um námskeiðið.
Námskeiðin eru haldin á Sandhaugum í Bárðardal en þar er frábær aðstaða fyrir reiðkennslu, vel útbúið hesthús með áfastri reiðskemmu, nýtt reiðgerði til æfinga og frábærir náttúruslóðar eru í kringum bæinn.
Reiðkennarar eru Anna Guðný Baldursdóttir og Malin Ingvarsson.
5 daga reiðnámskeið fyrir börn með reiðkennslu og skemmtun frá morgni til kvölds. Reiðkennsla fer fram í gerði og í náttúrunni, reiðtúrar og æfingar sem bæta ásetu og stjórnun.
Innifalið er fæði, gisting, reiðkennsla, reiðtygi og hjálmar. Hægt er að koma með eiginn hest eða fá hest til afnota.
Verð 9-13. Júní : 95.000kr - 5% systkinaafsláttur
Verð 16-20. Júní : 95.000kr - 5% systkinaafsláttur
Greiða þarf staðfestingargjald kr 30.000 til að tryggja sætið.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband í tölvupósti : [email protected]
eða í síma 6937757 (Anna Guðný) eða 8521018 (Malin)