14/08/2024
Árleg hestaferð Skriðufellsfjölskyldunnar endaði í dag. Í ár var ákveðið að ríða þá ferð sem við fórum með ferðamenn fyrir 20 árum. Yfir Hellisheiði, um Vopnafjörð og í Vesturárdal, þaðan upp í Arnarvatn, niður í Vopnafjörð um Hofsárdal og þaðan yfir Smjörvatnsheiði og heim. Ferðin er s*x dagleiðir. Við vorum heppin með veður alla dag, smá þoka á fyrsta degi en það útsýni er okkur aðgengilegt, síðan ákváðum við að bíða af okkur mánudaginn vegna veðurs og hestar og knapar hvíldu sig. Þakkir fá allir sem greiddu götu okkar hvað varðar áningu og náttstaði. Knaparnir voru við gamla settið börn og tengdadætur alls átta knapar. Engin hestaferð gengur smurt án góðs trússara og þar er lukkan með okkur því okkar góði vinur Sveinn Pálsson fylgdi okkur alla daga og græjaði allt sem græja þurfti fyrir okkur knapana, takk takk 🥰. Við erum strax farin að hlakka til næstu ferðar. Sveinn Pálsson Stefanía Malen Stefánsdóttir Ragnar Magnússon