Askur Hundaþjálfari

Askur Hundaþjálfari Askur B. Laufeyjarson
Útskrifaðist sem hundaþjálfari 2021 og fór í auka nám 2024. Með mikla reynslu á bæði sleða og smalahundum.

09/03/2026

Kominn heim eftir geggjað mót!
Biðst afsökunar á seinkun við svörun á skilaboðum og tölvupóstum, reyni að komast yfir það í dag :)

07/03/2026

Vetrarhátíð stendur yfir við Mývatn en á hátíðinni eru stundaðar fjölbreyttar vetraríþróttir úti í náttúrunni, bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Meðal annars er keppt í hundasleðakeppni og hægt að keyra Gokart bíla á ís.

Fyrri dagur vetrarmóts ✅ Hundarnir á Hallbjarnarstöðum náðu 1. og 3. sæti í 10km 2-3 hundar
06/03/2026

Fyrri dagur vetrarmóts ✅
Hundarnir á Hallbjarnarstöðum náðu 1. og 3. sæti í 10km 2-3 hundar

Eftir þjálfunar knúsið hans smala
25/02/2026

Eftir þjálfunar knúsið hans smala

23/02/2026
Keppnis-hundur dagsins - Skuggi 🕶️Skuggi er alveg hreint magnaður sleðahundur, hann hefur allt sem ég leitast eftir, nem...
19/02/2026

Keppnis-hundur dagsins - Skuggi 🕶️
Skuggi er alveg hreint magnaður sleðahundur, hann hefur allt sem ég leitast eftir, nema mætti hafa pínu meiri einbeitingu en einbeitingin hefur þó farið batnandi í vetur... Sjáum til hvað gerist í sumar þegar að áreitið eykst 🫣
Skuggi er annar af tveimur hundum hjá mér sem að hefur náð bikar í bikejoring, scooter og á sleða!
Skuggi byrjaði keppnisferill sinn 2024 en þá mætti hann rétt rúmlega 1. árs á vetrarmóti og keppti í tveimur flokkum
5 km sleði 2 hundar - 3. Sæti 🥉 með 16mín og 20 sek í tíma
10 km sleði 6 hundar - 2. Sæti 🥈 með 28 mín og 30 sek í tíma
Næst var það haustmót sama ár, þar keppti hann í 8.5 km scooter og vann! 🏆 Hann fór brautina á 25 mín og 20 sek
2025 keppti hann bæði á haustmótinu og goHusky
Á gohusky tók hann þrjár greinar
Tvíþraut - 1. Sæti 🏆
10 km bikejoring - 1. Sæti 🏆
5 km scooter - 1. Sæti 🏆
Á haustmótinu var hann svo lánaður og keppti vinkona mín með hann í 8.5km bikejoring og náði 4.sæti með 23 mín og 30 sek í tíma.
2026 lánaði ég hann aftur fyrir sleðahundadaginn okkar, hann keppti í 3km opnum flokki á sleða og náði 1. Sæti! 🏆
Nú er hann skráður í tvo flokka á Mývatni svo það verður gaman að sjá hvað hann gerir þar!

Skráning á mót komin í gegn ✔️ Skráðum okkur í 15 km sleða 4-6 hundar5km sleða 3-4 hund 5km sleða 2 hund 2km skijoring 1...
18/02/2026

Skráning á mót komin í gegn ✔️
Skráðum okkur í 15 km sleða 4-6 hundar
5km sleða 3-4 hund
5km sleða 2 hund
2km skijoring 1 hund
Fyrir 15 km flokkinn verður teymið svona:
Fremst: Næla og Blettur, bæði ákafir leiðarar sem elska að hlaupa! Bæði meðal bestu keppnishundanna minna
Miðja: systurnar Dimma og Tófa, Tófa er efnilegur leiðari og sveiflu hundur, Dimma er magnaður teymis og sveiflu hundur. Hvorugar hafa sannað sig almennilega á keppnum en það breyttist vonandi í ár, báðar njóta sín mun betur á snjó en í dryland greinum.
Aftast: bræðurnir Melrakki og Skuggi, trukkarnir í teyminu, stærstu og sterkustu hundarnir á bænum, hraðir og ákveðnir! Eini gallinn? Annar nennir ekki að hlusta og hin er með athyglisbrest 😆
Ég hef mikla trú á þessu teymi og hlakka til að keppa með þau!

Address

Hallbjarnastöðum
Egilsstaðir
701

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Askur Hundaþjálfari posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Askur Hundaþjálfari:

Share

Category