20/06/2026
Ég hef ekki póstað að ráði í mjög langan tíma. Ég hef verið í barneignum og námi. Kláraði M.ed í menntunarfræðum í dag sem hefur meðal annars hjálpað mér að gera námsleiðina mína fyrir hundaþjálfara betri. Er líka mamma 4 barna og stolt af öllum konum sem vinna og/eða eru í námi samhliða mömmuhlutverkinu.
Ég veit ekki nákvæmlega hvert ég er að fara í hundamálum. Ég á netnámskeið og útgefnar bækur ásamt sjónvarpsþáttum og þar er mitt efni sem hægt er að nálgast.
Stuðningur við núverandi og verðandi hundaþjálfara verður alltaf í boði hjá mér. Áfram þið!
Hlý kveðja