10/07/2026
🏆Adrían frá Garðshorni á Þelamörk verður hjá okkur í sæðingum frá 31.júlí og fram til 4.september 🏆
Adrían gefur stór, fótahá og framfalleg hross með frábært geðslag. Þau eru jafnvægisgóð á öllum gangi og koma mjög snemma til - eins og hann gerði sjálfur. Adrían gefur hreyfingarmikil hross með rúmt, takthreint og mjúkt tölt, frábært skeiðupplag, góðar hreyfingar á brokki og skrefmikið, tandurhreint stökk.
Adrían hefur hlotið í B-flokk hæst 8,82, og er annar inn í A-úrslit á Landsmóti Hestamanna 2026.
Adrían er að sanna sig sem framúrskarandi kynbótahestur. Hann hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi 2026, og á 51 sýnt afkvæmi af 125 afkvæmum á tamningaaldri.
Má nefna að öðrum frábærum afkvæmum ólöstuðum:
🌟Dalvar frá Efsta-Seli AE. 9,04
🌟Vala frá Vindási AE. 8,89
🌟Valíant frá Garðshorni, Þelamörk AE. 8,66
🌟Óskastund frá Steinnesi AE. 8,65
🌟Fleygur frá Geitaskarði AE. 8,61, hæfileikar án skeiðs 9,23
Við höfum kynnst bæði Dalvari og Fleyg persónulega í sæðingum síðustu tvö árin, og er óhætt að segja að geðslag þeirra beggja sé framúrskarandi 🤩
Verð fyrir sæðingu, uppihald og folatoll er 372.000 með vsk.
Upplýsingar og pantanir í s. 695-8766 (Guðrún) eða 866-8048 (Aníta)