27/02/2026
Til sauðfjárbænda
Við erum farin að taka við bóluefnapöntunum fyrir vorið. Bólusett er gegn bráðapest, lambablóðsótt og flosnýrnaveiki/garnapest.
Best að heyra í Kristínu Þórhalls dýralækni eða senda okkur skilaboð hér á Facebook síðu Dýralæknasetursins.
Blandað bóluefni frá Keldum:
Eins og áður er ráðlagt að bólusetja gemlinga tvisvar sinnum, svokölluð grunnbólusetning. Ráðlagt að hafa minnst 4 vikur eða fleiri frá fyrri grunnbólusetningu og þar til seinni grunnbólusetning er gerð. Sú seinni má vera gerð stuttu (innan við 2 vikum) fyrir sauðburð því mótefni munu fljótt komast yfir í broddinn.
Tribovax:
Það veitir vörn gegn lambablóðsótt, bráðapest og flosnýrnaveiki/garnapest. Grunnbólusetninguna á að gefa 2x með 4-6 vikna millibili og þannig að síðari bólusetningin sé gefin seinast um 2 vikum fyrir burð.
Lambivac:
Það veitir vörn gegn lambablóðsótt, flosnýrnaveiki/garnapest og stífkrampa (en ekki vörn gegn bráðapest). Grunnbólusetningin með Lambivac fer þannig fram að bólusett er 2x með 6 vikna millibili og seinni bólusetningin 4-6 vikum fyrir burð. Þetta þýðir að fyrri bólusetningin þarf því helst að fara fram í febrúar ef sauðburður er í maí.
Einnig viljum við vekja athygli á rannsókn sem framkvæmd var á Keldum fyrir tveimur árum. Þá var lömbum safnað sem talin voru að hefðu drepist úr slefsýki (E.coli). Lömbin voru krufin á Keldum og greindust mörg hver hins vegar með lambablóðsótt, sem er clostridumsjúkdómur sem upptalin bóluefni eiga að veita vörn gegn.
Það er því umhugsunarvert fyrir bændur þar sem mikil slefsýki er til staðar að bólusetja allar fengnar ær tvisvar sinnum þar sem möguleiki er á að lambablóðsótt sé að valda lambadauða en ekki eingöngu slefsýki (E.coli sýking). Við hvetjum bændur eindregið að senda lömb til krufningar sé mikið um lambadauða. Dýralæknar hafa milligöngu við Keldur það.
Kristín Þórhalls., Kristín Inga og Karvel
dýralæknar