Dýraspítalinn Glæsibæ

  • Home
  • Dýraspítalinn Glæsibæ

Dýraspítalinn Glæsibæ Veterinary practice/clinic

Starfsfólk Dýraspítalans Glæsibæ óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla.
24/12/2025

Starfsfólk Dýraspítalans Glæsibæ óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla.

22/10/2025

„Langir dagar í móa, mýri og snjó taka sinn toll – líka á besta veiðihundinn. 🐕

COMPLIVIT gefur honum orku, vítamín og úthald í einum skammti af ljúffengum vökva.

Blandað í vatn eða gefið beint – hjálpar hundinum að drekka meira og endurheimta hraðar í krefjandi veiði og útiveru.
🎯 Þegar veiðin krefst orku – treystu COMPLIVIT.“
👉 þú færð COMPLIVIT fyrir næstu ferð hjá dýralækninum þínum og vertu viss um að veiðifélaginn þinn sé í toppformi frá fyrsta skrefi.

16/10/2025

Garnaveikibólusetningar 🐑

Kæru bændur í Húnavatnssýslum og Skagafirði. Nú fara ásetningslömbin að týnast inn og tími til kominn að bólusetja gegn garnaveiki.

Að öllu óbreyttu ætti verð á bóluefninu að vera komið í fyrra horf ☺️ gott er ef ormahreinsun í hundum og köttum fer fram samhliða bólusetningunni

Bændur í Húnavatnssýslum hafi samband við Þuríði og bændur í Skagafirði við Stefán 💉🐑

Sjáumst!

🐶🐕🐕‍🦺🦮Það er enn 1 plás laust á grunnnámskeið næstu helgi.   Drifa sig að skrá !!! Og svo verður líka spora námskeið í b...
07/09/2025

🐶🐕🐕‍🦺🦮Það er enn 1 plás laust á grunnnámskeið næstu helgi. Drifa sig að skrá !!!

Og svo verður líka spora námskeið í boði

Spor er ein af mest gefandi og náttúrulegu leiðum fyrir hunda til að vinna með nefið. Þetta námskeið er fullkomin byrjun fyrir alla hundaeigendur sem vilja gefa hundinum sínum áskorun og verkefni, en fátt þreytir hunda jafn mikið og að þefa! 🐾

Spor til skemmtunar fyrir byrjendur – vinnum með genin! Námskeiðið er sirka 5 klst. hvorn dag, samtals 10 klst. Spor er ein af mest gefandi og náttúrulegu leiðum fyrir hunda til að vinna með nefið. Þetta námskeið er fullkomin byrjun fyrir alla hundaeigendur sem vilja gefa hundinum sí...

Margir búinn að spyrjast eftir því… Nú er rétt tækifæri!Viltu styrkja velgengni þín og tengsl við þinn besta vin? Fjárfe...
21/08/2025

Margir búinn að spyrjast eftir því…

Nú er rétt tækifæri!
Viltu styrkja velgengni þín og tengsl við þinn besta vin? Fjárfestu í trausti, hlýðni og jákvæðri þjálfun með Grunnnámskeið frá Hundakúnst!
Kemur á Sauðárkróki 13-14. September.

Grunnnámskeið yfir eina helgi á landsbyggðinni og netnámskeið frítt með. Ef þú sérð ekki þitt bæjarfélag hafðu samband við okkur.

Dýralæknavaktir í maí 🐑🐮🐴 Kæru bændur, eins og undanfarin ár setjum við hér slóð sem liggur inn á heimasíðu MAST og sýni...
01/05/2025

Dýralæknavaktir í maí 🐑🐮🐴

Kæru bændur, eins og undanfarin ár setjum við hér slóð sem liggur inn á heimasíðu MAST og sýnir hvernig skipting seinniparts- og helgarvakta í maí liggur ☺️ við minnum á að Skagafjörður og Húnavatnssýslur eru sitthvort vaktsvæðið

📍ATH - vaktirnar eru frá 17:00 - 08:00 virka daga og allan sólarhringinn um helgar og á rauðum dögum. Þetta plan á ekki við um dagvinnu virku dagana 📍

Gangi ykkur sem allra best í sauðburðinum 🐑

Fyrir neyðartilvik eru opinberar vaktir sjálfstætt starfandi dýralækna alla virka daga frá kl. 17:00 til kl. 08:00 næsta dag og um helgar frá kl. 17:00 á föstudegi til kl. 08:00 á mánudegi.

Þá er komið að því. Grunnnámskeið með besta vinina. Allir að skrá sig ❤️❤️
13/03/2025

Þá er komið að því. Grunnnámskeið með besta vinina. Allir að skrá sig ❤️❤️

🐶Lærðu mismunandi þjálfunaraðferðir og fullt af gagnlegum grunnæfingum

Tilkynning fyrir gæludýra eigendur: Ég vill láta ykkur vita að dýraspítalinn er ekki opin eins og vanalega og verður lok...
02/03/2025

Tilkynning fyrir gæludýra eigendur:

Ég vill láta ykkur vita að dýraspítalinn er ekki opin eins og vanalega og verður lokuð frá 3. mars til 11. mars. Fyrir tilfelli sen þola enga bið er hægt að hafa samband við Stefán í 8225488.
Ég þakka ykkur fyrir skilninginn og mun vera tilbúin að aðstoða ykkur aftur þegar ég kem til baka.
Kæri kveðjur úr ☀️ í ölpunum. ⛷️
Annemie

26/02/2025

Jæja kæru sauðfjárbændur🐏nú fer að líða að vori og kominn tími til að huga að bólusetningum

Blandaða bóluefnið frá Keldum, Tribovax og Lambivac eru fáanleg eins og staðan er. Heptavac er ekki fáanlegt og vitum við því miður ekki hvernig staðan verður á því í vor.

Hér að neðan má finna upplýsingar um tímasetningar á hverju bóluefni fyrir sig og athugið sérstaklega að fyrirmæli hafa breyst hvað varðar Blandaða bóluefnið frá Keldum ☺️‼️

_______________________________________________________________________

Keldnabóluefnið:

❗️Gemlingar eru grunnbólusettir tvisvar eins og vant er en nú eiga að líða að minnsta kosti 4 vikur á milli bólusetninga en ekki tvær eins og verið hefur áður ! ❗️

Seinni bólusetning (allt féð) má vera gerð innan við 2 vikum fyrir sauðburð því vörnin berst hratt í broddinn

_______________________________________________________________________

Tribovax:

Grunnbólusetning í gemlingum skal framkvæmd með tveimur sprautum með 4-6 vikna millibili

Seinni bólusetning (allt féð) skal gerð 2-8 vikum fyrir burð

_______________________________________________________________________

Lambivac:

Grunnbólusetning á gemlingum skal framkvæmd með tveimur sprautum með 6 vikna millibili

Seinni bólusetning (allt féð) skal gerð 3-4 vikum fyrir burð

_______________________________________________________________________

Endilega pantið hjá okkur bóluefni sem allra fyrst svo við vitum hversu mikið þarf að panta inn ☺️

Sauðfjárbændur í Skagafirði hafið samband við Stefán og sauðfjárbændur í Húnavatnssýslum hafið samband við Þuríði

Eigið góðan dag !

13/02/2025

Address


Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3545787990

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Dýraspítalinn Glæsibæ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Dýraspítalinn Glæsibæ:

Shortcuts

  • Want your business to be the top-listed Pet Store/pet Service?

Share