Hundaþjálfun Evu

Hundaþjálfun Evu Lauk námi í hundaþjálfun og atferli hjá Heiðrúnu Villa 2024. Rækta dvergschnauzer og snyrti 🐾

09/08/2025

Plag*t sem á við sérstaklega við þegar hundar eru að hitta viðkomandi í fyrsta skiptið. Málið er að láta hundinn sýna sér fyrst og finna á honum að hann hafi áhuga á þér og koma til þín áður en þú ákveður að hann hafi áhuga á þér og nálgast hann. Alltof mörg bit verða vegna þess að þetta er ekki virt. Tortryggni við ókunnuga er algengt hjá hundum, en þá þurfa þeir að fá smá stund til að sjá að allt sé í lagi með þann sem er nýkominn í umhverfið þeirra og þá er gott að fara eftir þessum leiðbeiningum.

09/08/2025

Mæli með 👌

🎶Í útilegu er gaman 🎶
22/06/2025

🎶Í útilegu er gaman 🎶

😍
25/10/2024

😍

Elsku dásamlega Þruman okkar 😍 Veiktist vikugömul á þriðjudegi og g*t ekki hreyft sig eða drukkið af spena. Fór í dagsinnlögn á Dýralæknastofu Suðurnesja á miðvikudegi og kom heim með þurrmjólk frá RC og sondu. Á laugardagsmorgni þegar að hún átti að fá sondu þá var hún komin á spena sjálf en náði ekki miklu. Á sólarhring fór hún úr því að fá sondu með spena sem var búið að örva, í það að fara sjálf á spena og drekka nóg til þess að sleppa við ábót. Í dag er hún rúmlega 4 vikna, elskar að borða hvolpamatinn frá RC, ennþá minnst en hún er hugrökkust, ákveðnust, háværust, laus við alla hræðslu og veit sko hvað hún vill. Hér er svo sannarlega frábær karakter á ferð 😍 Hér dafna móðir og hvolpar vel á fóðri frá Royal Canin ❤️ Dýrheimar Royal Canin Ísland

Nú hefur fjölgað í kotinu og ekkert nema fjör framundan 🥰
25/09/2024

Nú hefur fjölgað í kotinu og ekkert nema fjör framundan 🥰

Þegar að kemur að hundaþjálfun, þá er þolinmæði gríðarlega mikilvæg. Fyrir rúmu ári síðan ákvað ég að læra um hundaþjálf...
11/09/2024

Þegar að kemur að hundaþjálfun, þá er þolinmæði gríðarlega mikilvæg.

Fyrir rúmu ári síðan ákvað ég að læra um hundaþjálfun og atferli hjá Heiðrúnu Villa. Ástæðan fyrir því var ósætti milli hunda á mínu heimili sem og erfiðleikar sem ég átti í með Grímu, þýska fjárhundinn minn. Hugsunin þarna að baki var ekki að hefja störf sem hundaþjálfari, heldur að koma á friði heima og nýta þekkinguna í þjálfun á mínum hundum. Ein mikilvægasta lexían í öllu þessu ferli var sú að það breytir enginn heiminum á sólarhring. Að sjá árangur hjá hundinum sínum getur tekið tíma, jafnvel vikur eða mánuði. Fyrir ári síðan hafði ég litla sem enga trú á því að ég gæti breytt hegðun hundanna minna með einfaldri grunnþjálfun, endurtekningu og þolinmæði en stundum er einfalt best. Ekki gefast upp á hundinum þínum og mundu að virðingarríkt hundauppeldi með áherslu á vellíðan hundsins skilar betri árangri.

03/09/2024

Sæl öll. Ég hef ákveðið að bjóða upp á hundaþjálfun á Suðurnesjum. Ég hef nýlokið námi hjá Heiðrúnu Villa í hundaþjálfun og atferli. Námið er vottað af IACP sem eru alþjóðleg samtök hundaþjálfara.

Fljótlega mun ég auglýsa hvaða þjónusta verður í boði. Endilega heyrið í mér ef það eru einhverjar spurningar eða vangaveltur og ég hlakka til að hefja þessa vegferð með ykkur og hundunum ykkar.

Kveðja,
Eva Björk Lowe.

Address

Keflavík
230

Telephone

+3548551105

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hundaþjálfun Evu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hundaþjálfun Evu:

Share