07/06/2026
HALLVEIG frá Holtabrún.
Það er eitt að eiga svona hross og það er annað að hafa ræktað það sjálf. Þvílík gleði og hjartahlýja.
Hallveig frá Holtabrún er 7 vetra í vor og er að stíga sín allra fyrstu spor í keppni, hefur nú keppt á tveimur mótum. Þær stöllur, Hallveig og Eik unnu sína fyrstu fjórgangskeppni á Hellu á dögunum og hefðu sennilega unnið fjórgang V1 á Reykjavíkurmótinu í dag hefði hún ekki losnað upp af greiða töltinu alveg í lokin. Einkunninn samt 7.0 út. Ég kvarta ekki - og það er hluti af þróun keppnishrossins að taka þátt, prófa og læra. Frábærlega gert í dag.
Þegar Hallveig kom í heiminn nefndi ég hana í höfuðið á Hallveigu heitinni Fróðadóttur vinkonu minni sem þá barðist við illvígt krabbamein. Hún gladdist yfir nafngiftinni, en lifði því miður ekki að sjá þann dag að nafna hennar kæmi fram sem slíkur gæðingur. En það hlýjar mér endalaust um hjartað að hryssan ætli að reynast slíkur gullgripur með þetta stóra nafn sem mér þykir svo vænt um.
Hallveig var fortamin tæplega veturgömul af Magga Lár í Holtsmúla. Hann skilaði henni með orðunum "Þetta tryppi er gersemi." Þar var Magnús Lárusson sannspár!
Fjögurra vetra fór hún í tamningu til Elvars Þormarssonar og strax á fyrstu vikunum sást að hún yrði einstök. Ótrúlega hreyfingamikil, skrefstór og jákvæð á allan hátt. Síðan hefur leiðin bara legið upp á við og það er ótrúlega gaman að byrja ferilinn svona vel eins og í vor og framtíðin spennandi. Vona að allir góðir hestavættir verndi hryssuna mína og veiti henni gott líf.
Mikið er ég glöð 🙂 og þakklát Eik fyrir fallegar sýningar og umhirðu á hryssunni.
F: Ljósvaki frá Valstrýtu
M: Þrenna frá Strandarhjáleigu (Þristsdóttir ❤)