05/06/2026
🐾 Hundar bundnir fyrir utan verslanir 🐾
Við viljum minna hundaeigendur á að samkvæmt 4. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 80/2016 um velferð gæludýra er aðeins heimilt að tjóðra hunda undir eftirliti.
Þetta á einnig við þegar hundur er skilinn eftir bundinn fyrir utan verslun á meðan eigandi fer inn að versla. Hundurinn er þá almennt ekki undir því eftirliti sem reglugerðin gerir ráð fyrir.
Auk þess geta skapast aðstæður sem valda hundinum streitu eða hættu, svo sem samskipti við ókunnuga, aðra hunda, umferð eða veðurfar.
Við hvetjum því hundaeigendur til að skilja hunda ekki eftir bundna og eftirlitslausa fyrir utan verslanir eða aðra staði.
Takk fyrir að stuðla að góðri velferð dýranna okkar. 🐶💚